Langþráðir boltavellir við Vesturbæjarskóla Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. mars 2020 11:29 Ný leiktæki voru sett upp þegar fyrsti áfangi við lóð Vesturbæjarskóla var kláraður í haust. Reykjavíkurborg
Nýir boltavellir og leiksvæði með trampólínum og pókóvöllum koma við Vesturbæjarskóla í sumar. Kostnaðaráætlun hljómar upp á 90 milljónir króna. Borgarráð hefur heimilað umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út framkvæmdir við annan áfanga vegna endurgerðar og stækkunar lóðar við Vesturbæjarskóla. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Áður hafa farið fram gagngerar endurbætur á skólalóðinni þegar áfangi eitt var framkvæmdur í fyrrasumar. Í þeim áfanga var gengið frá lóð við nýja viðbyggingu skólans, ný leiktæki og rólur sett upp, auk yfirbyggðs hjólaskýlis og vistlegra útivistarpalla úr tré. Þá var hellulögn endurnýjuð í kringum skólann. Í öðrum áfanga verður lóðin stækkuð í samræmi við samþykkt deiliskipulag og komið fyrir nýrri gönguleið á milli Hringbrautar og Ásvallagötu. Gerðir verða nýir boltavellir og leiksvæði á gervigrasi, ný hvíldar- og útikennslusvæði ásamt pókó- og trampólíngörðum. Einnig verður komið fyrir setbekkjum, leikpöllum og nýjum gróðurbeðum á lóðinni. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg er þess getið að enginn fótboltavöllur með gervigrasi sé í þessum hluta Vesturbæjar, norðan Hringbrautar.
Reykjavík Skóla - og menntamál Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Innlent Fleiri fréttir „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Sjá meira