Ferðabannið gríðarlegt reiðarslag fyrir þjóðina Stefán Ó. Jónsson skrifar 12. mars 2020 08:45 Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra á þriðjudag, þegar hann kynnti efnahagsaðgerðir vegna kórónuveirunnar. Vísir/vilhelm
Ferðabann Bandaríkjaforseta er gríðarlegt reiðarslag að mati fjármálaráðherra, sem segist hafa snöggreiðst þegar hann heyrði af ákvörðun Donald Trump Bandaríkjaforseta í nótt. Bjarni Benediktsson telur að það hefði verið heillavænlegra fyrir ríki heims að auka samstarf til að takmarka útbreiðslu kórónuveirunnar og efnahagsleg áhrif hennar. Mikilvægast sé að standa vörð um líf og heilsu landsmanna. Ísland sé vel í stakk búið til að takast á við áföll, þegar sé búið að kynna aðgerðir til að blása lífi í hagkerfið og stjórnvöld vinni ekki út frá því að „þetta reddist.“ Fjármálaráðherra segir Íslendinga standa frammi fyrir fleiri en einni ógn; bæði af veirunni sjálfri sem og þeim áhrifum sem henni fylgj. Mikilvægast sé að hefta útbreiðslu veirunnar, hlífa fólki í veikri stöðu og þannig lágmarka álag á heilbrigðiskerfið.Sjá einnig: Trump lokar á ferðalög frá Evrópu til Bandaríkjanna „Við verðum að standa saman um ábyrga og skynsamlega hegðun. Þetta er í fyrsta sæti hjá okkur til þess að hlífa hreinlega lífi fólks hérna á Íslandi,“ segir Bjarni. „Ef við missum stjórn á þeirri stöðu þá förum við upp fyrir ákveðinn þröskuld sem heilbrigðiskerfið ræður við, alveg eins og við höfum séð í öðrum löndum. Þetta verður að vera í fyrsta sæti hjá okkur," segir fjármálaráðherra. Efnahagslega áfallinu sem veirunni fylgir lýsir fjármálaráðherra sem „gríðarlegu reiðarslagi fyrir þjóð sem byggir afkomu sína í sívaxandi mæli á komu ferðamanna til landsins. Það er alveg ljóst að áhrifin sem við stöndum frammi fyrir eru langt umfram það sem við gátum ímyndað okkur fyrir tveimur vikum, tíu dögum, jafnvel á mánudaginn.“Góð staða en alveg nýtt samhengi Degi síðar kynntu stjórnvöld aðgerðir til að mæta mögulegum þrengingum vegna veirunnar. Þær má nálgast hér. Þrátt fyrir að Bjarni segist hafa fulla trú á aðgerðunum og reynt verði „að bjarga sem flestum störfum og valda sem minnstri röskun hjá heimilum“ segir fjármálaráðherra að ekki sé hægt að fyrirbyggja slíkt. Það verði líklega ekki hjá „gríðarlegum áföllum“ hjá ferðaþjónustunni komist. Það hafi ekki síst verið í því ljósi sem ákveðið hafi verið að „styrkja stuðningskerfin okkar og smíða leiðir til þess að þeir sem lenda í slíkum áföllum fái stuðning frá okkur hinum því við ætlum að ná okkur aftur upp úr þessu,“ eins og Bjarni orðar það.Sjá einnig: Ferðabann Trump mun bíta Íslendinga„Góðu fréttirnar eru þær að við höfum nýtt góðu árin undanfarið til að koma okkur í sterka stöðu. Við höfum, eins og Seðlabankinn benti á í gær, líklega aldrei verið í sterkari stöðu til að fást við áföll. Við höfum greitt upp það mikið af skuldum, við höfum notið góðra lánskjara að undanförnu og við höfum einfaldlega getuna til að taka áfall í fangið. Við vorum að vonast til að komast út úr hægara hagkerfi á tiltölulega skömmu tíma og tryggilega, en þetta setur hlutina í alveg nýtt samhengi," segir Bjarni.Trump greindi frá ferðabanninu í gærkvöldi. Það tekur gildi á morgun. Bjarni Benediktsson segir ákvörðunin hafa verið fyrirvaralausa, einhliða og mjög ergilega.Getty/poolEinhliða og fyrirvaralaus ákvörðun „Maður snöggreiðist innan í sér þegar maður heyrir svona ákvarðanir sem manni finnst að eigi ekki að geta komið upp í alþjóðasamskiptum, án fyrirvara og einhliða. Ég lít þannig á að við ættum frekar að efla samstarf ríkja um að lágmarka útbreiðsluna og efnahagsleg áhrif af henni. Þetta sýnir enn og aftur það sem við höfum séð svo oft í sögunni og megum aldrei gleyma að þegar svona krísur koma upp; þá er hver sjálfum sér næstur. Þetta er bara enn eitt dæmið um það og við verðum að gæta að okkar hagsmunum líka.“Sjá einnig: Veita fyrirtækjum svigrúm og bæta í opinberar framkvæmdirBjarni gefur þannig ekki mikið fyrir þann rökstuðning Trump að Evrópuríkin, Ísland þar með talið, hafi ekki tekið nógu fast á veirunni. Staðan sem upp er komin sé fordæmalaus, ekkert bóluefni sé til við veirunni og útbreiðslan sé hröð. „Það er ekki boðleg nálgun að segja að stjórnvöld hafi verið kærulaus í öðrum ríkjum. Veiran hefur komið upp í Bandaríkjunum, veiran varð ekki til í Evrópu,“ segir Bjarni. „Ég skil allar ríkisstjórnir sem grípa til umfangsmikilla aðgerða til að hefta útbreiðsluna, það ætlum við líka að gera og við höfum beitt þeim aðferðum á hverju stigi málsins sem mat okkar færasta fólks hefur talið færastar og réttar. Við höfum sagt að það kunni að koma til frekari aðgerða og það er metið oft á dag á hverjum degi. En það er reiðarslag engu að síður að svona afdrifaríkar ákvarðanir séu teknar án aðdaganda og án samtals með þessum hætti. Afleiðingar af þessari ákvörðun eiga auðvitað alfarið eftir að koma í ljós en maður sér það í hendi sér hversu gríðarlegar þær verða.“Það má vænta þess að ferðabannið muni hafa mikil áhrif á afkomu Icelandair Group.Vísir/vilhelmTjónið lágmarkað og stutt við Icelandair Þegar Bjarni var spurður hvort íslensk stjórnvöld geti sótt um undanþágu frá ferðabanninu segir hann að farið sé yfir alla kosti í stöðunni. Ekki sé þó gengið út frá því að „þetta reddist.“ Íslendingar verði að líta á ákvörðun Bandaríkjaforseta sem reiðarslag sem geti varað í einhvern tíma. Aðgerðir stjórnvalda munu miða við það. Bjarni segir jafnframt að engin trygging sé fyrir því að ferðamennska fari aftur á fullt um allan heim, þó svo að nýskráðu smiti fari fækkandi að einhverjum mánuðum liðnum. „En það sem við getum gert er að vera tilbúin með markaðsátak, þó svo að það kunni að hljóma einkennilega í dag, samhliða öðrum aðgerðum til að vera reiðubúin að lágmarka tjónið og fjölga störfum í þessari atvinnugrein sem á sér bjarta framtíð. Þetta er tímabundið ástand.“ Aðspurður um hvort stjórnvöld muni hlaupa undir bagga með Icelandair, sem megi vænta umtalsverðs bakslags vegna ferðabannsins, segir Bjarni að stjórnvöld muni gera „allt sem er raunhæft“ til að styðja félagið í gegnum erfiða tíma. Það sé hins vegar ekki tímabært að fara að úttala sig um leiðir í því. Viðtalið við hann í heild má heyra hér að ofan.
Bítið Efnahagsmál Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ferðamennska á Íslandi Icelandair Tengdar fréttir Ferðabann Trump mun bíta Íslendinga Íslendingar mega vænta umtalsverðra efnahagslegra áhrif af ferðabanni Bandaríkjaforseta 12. mars 2020 07:00 Mest lesið Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Innlent Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Friðarsamkomulag verði undirritað á morgun Erlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Límdu efnin á fætur sína Innlent Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Innlent Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent Fleiri fréttir Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Límdu efnin á fætur sína Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Sjá meira
Ferðabann Trump mun bíta Íslendinga Íslendingar mega vænta umtalsverðra efnahagslegra áhrif af ferðabanni Bandaríkjaforseta 12. mars 2020 07:00