Hinn slasaði hafði átt við ósprungna tívolíbombu Atli Ísleifsson skrifar 24. ágúst 2020 10:07 Úr Heiðmörk. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm
Mjög alvarlegt flugeldaslys varð í Heiðmörk í gærkvöldi þar sem maður fann og átti við ósprungna tívolíbombu sem sprakk svo í höndunum á honum. Þetta kemur fram í Facebook-færslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en sagt var frá málinu í morgunskeyti lögreglunnar til fjölmiðla þar sem talað var um „sprengju“. Hafi hún fundist í rjóðri við göngustíg í Heiðmörk. Um erlenda einstaklinga var að ræða og hafi tungumálaörðugleikar flækt samskipti lögreglu, að því er segir í skeyti lögreglu. „Maðurinn mun hafa farið að eiga við bombuna (sprengjuna) með þeim afleiðingum að hún sprakk í höndunum á honum. Hann hlaut mjög alvarlega áverka á hendi við sprenginguna,“ segir í færslu lögreglu. Þar segir að af þessu tilefni sé full ástæða til að vara almenning við að fara að fikta eða eiga við sprengjur eða torkennilega hluti sem þeir kunna að finna á víðavangi eða annarstaðar. „Í þeim tilfellum sem fólk finnur eða kemur að torkennilegum hlutum á tafarlaust að tilkynna það til lögreglu í síma 112. Við viljum einnig biðla til foreldra eða forráðamanna barna og unglinga að ræða þessi mál við börnin sín.“
Reykjavík Lögreglumál Flugeldar Tengdar fréttir Slasaður eftir að hafa handleikið sprengju í Heiðmörk Slys varð við Heiðmerkurveg rétt fyrir klukkan sjö í gærkvöld þegar maður slasaðist eftir að hafa fundið sprengju í rjóðri við göngustíg í Heiðmörk. 24. ágúst 2020 06:54 Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Innlent Fleiri fréttir Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot Sjá meira
Slasaður eftir að hafa handleikið sprengju í Heiðmörk Slys varð við Heiðmerkurveg rétt fyrir klukkan sjö í gærkvöld þegar maður slasaðist eftir að hafa fundið sprengju í rjóðri við göngustíg í Heiðmörk. 24. ágúst 2020 06:54