Hafið sigraði Exile 16-5 Bjarni Bjarnason skrifar 2. september 2020 08:30
Hafið sigraði Exile á heimavelli, 16-5, en nýliðar deildarinnar lutu í lægra haldi fyrir reynsluboltunum í Hafinu sem gefa ekkert eftir þrátt fyrir að hafa verið lengi að. Exile sýndi á köflum góða takta en áttu í erfiðleikum með að klára loturnar gegn stjörnunum í Hafinu. Kortið Train varð fyrir valinu hjá Hafinu sem var heimavallarlið í þessari viðureign. Exile menn byrjuðu í sókn(Terrorist) og HaFiÐ í vörn (Counter Terrorist). Í fyrri hluta gerði Rec0 (Gilbert Arnar Sigurðsson) góða hluti fyrir Exile, opnaði og stal mikilvægum leikmönnum úr vörn Hafsins. En það var ekki nóg til að sigrast á Hafinu þar sem allee (Alfreð Leó Svansson) stóð sig vel með vappanum og peter (Pétur Örn Helgason) dekkaði B sprengjusvæðið eins og herforingi. Kortið Train liggur þannig að fýsilegt er að dekka annan helming kortsins (sprengjusvæði A) með fjórum leikmönnum og hafa fimmta leikmanninn einan að sjá um hinn hlutann (sprengjusvæði B). Fyrri hálfleikur var heldur einhliða þó að gloppur hafi verið á vörn Hafsins náði Exile ekki að nýta sér það. Staðan í hálfleik var 11-4 fyrir Hafið. Jolli (Eyjólfur Aðalsteinn Eyjólfsson) stal fyrstu lotu í seinni hálfleik frá Hafinu með „ninja defusi“. En hann var einn á móti tveimur leikmönnum Hafsins og náði að aftengja sprengjuna án þeirra vitundar. Það er þekkt í CS heiminum að lotur sem tapast svona geti smitað út frá sér því stór hluti leiksins er andlegur. En Hafið stóð þetta af sér og svaraði strax í næstu lotu þrátt fyrir að vera verr staddir fjárhagslega. Tuttugasta lota var fyrsta lota Exile manna með fullan búnað og hefði getað markað tímamót en öldugangurinn var of mikill í Hafinu og leki var í rauða stiganum inn á A sprengjusvæðið sem Exile menn gátu ekki stoppað. Critical maður leiksins var peter (Pétur Örn Helgason) sem kom inn af bekknum og gaf byrjunarliði Hafsins ekkert eftir þar sem hann lokaði hálfu kortinu þegar þeir spiluðu vörn.
Rafíþróttir Vodafone-deildin Mest lesið Biður Dag afsökunar Handbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Enski boltinn „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Handbolti Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Enski boltinn Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Enski boltinn Ákváðu að spila þrátt fyrir banaslys á leið á mótið og unnu síðan mótið Sport Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Handbolti Segja að bestu árin hjá þessum hóp séu fram undan Handbolti