Stormur, slydda og jafnvel snjókoma í kortunum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 7. september 2020 07:30 Það kólnar norðanlands í kvöld og má því búast við slyddu og jafnvel snjókomu á fjallvegum. Veðurstofa Íslands
Lægðin sem gekk yfir landið í gær stjórnar áfram veðrinu í dag og á morgun, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Lægðin er skammt norður af Melrakkasléttu, hreyfist lítið í dag og beinir til okkar svalara lofti. Á morgun þokast hún svo austur á bóginn, grynnist heldur og þá dregur úr vindi. Í dag verður vestanátt, víða 8-13 metrar á sekúndu á austurhelmingi landsins og slær þar í storm á stöku stað, einkum með norðausturströndinni og í vindstrengjum við fjöll. Þá verður rigning víða norðanlands og kólnar með deginum. Undir kvöld eru því líkur á slyddu eða snjókomu á fjallvegum á þeim slóðir. Skúrir sunnan- og vestanlands en þurrt á Austfjörðum. Hiti á bilinu 7-14 stig, hlýjast austantil en 2-7 stig á norðanverðu landinu í kvöld. Veðurhorfur á landinu: Á þriðjudag: Norðlæg átt 8-15 m/s. Bjart með köflum, en dálítil rigning á láglendi norðan- og austanlands. Hiti 2 til 7 stig, en 8 til 13 stig sunnantil á landinu. Á miðvikudag: Fremur hæg breytileg átt og víða bjartviðri, en norðvestan 8-15 m/s norðaustantil framan af degi. Vaxandi suðaustanátt og fer að rigna um vestanvert landið um kvöldið. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast vestanlands. Á fimmtudag: Suðaustan og austan 10-18 m/s, hvassast norðvestantil. Rigning í flestum landshlutum, en úrkomulítið á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 7 til 13 stig. Á föstudag: Austan og norðaustan 13-20 m/s, hvassast á Vestfjörðum, og rigning um norðanvert landið. Fremur hæg norðlæg átt og bjart með köflum sunnantil. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast syðst.
Veður Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira