Innlent

Myndir frá Austur­velli: „Fokkið ykkur úr firðinum“

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Mótmælin voru haldin í samstarfi Landverndar, Verndarsjóðs villtra laxastofna og Vá, félags um vernd fjarðar, ásamt breiðfylkingu náttúruverndarsamtaka.
Mótmælin voru haldin í samstarfi Landverndar, Verndarsjóðs villtra laxastofna og Vá, félags um vernd fjarðar, ásamt breiðfylkingu náttúruverndarsamtaka. Vísir/Viktor Freyr

Fjöldi fólks kom saman til að mótmæla sjókvíaeldi Kaldavíkur á Seyðisfirði í dag, bæði á Seyðisfirði og í Reykjavík en mótmælin fóru fram samtímis. Breiður hópur náttúruverndarsamtaka stóð fyrir mótmælunum. 

Viktor Freyr ljósmyndari Vísis var á Austurvelli fyrr í dag og fangaði þessar myndir.

Rúmlega 13 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun um verndun Seyðisfjarðar, segir í tilkynningu frá aðstandendum mótmælanna. Stendur til að afhenda Jóhanni Páli Jóhannssyni umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra undirskriftirnar á morgun.

Margir mættu með spjöld og fána. Vísir/Viktor Freyr

Meðal þeirra samtaka sem stóðu að mótmælunum má nefna Landvernd, félög sem berjast fyrir villta laxastofninum á Íslandi, og Vá, félag um vernd fjarðar, auk Katrínar Oddsdóttur lögmanns. 

Að mati aðstandenda mótmælanna er Seyðisfjörður orðinn táknmynd stærri spurningar um lýðræði, náttúruvernd og almannahagsmuni á Íslandi.Vísir/Viktor Freyr

„Ég trúi því að það sé mjög, mjög mikilvæg stund í íslenskri náttúruverndarsögu akkúrat núna og að það sé ákaflega mikilvægt að við sjáum sem flesta á báðum stöðum til að reyna að sporna við því að það verði nokkurn tímann sjókvíaeldi á Seyðisfirði,“ sagði Katrín í samtali við Vísi sem birtist fyrr í dag. 

Á Austurvelli var beint streymi frá mótmælunum á Seyðisfirði.Vísir/Viktor Freyr

Katrín segir að miklir annmarkar séu á leyfisveitingum og að afgerandi meirihluti heimamanna sé mótfallinn sjókvíaeldinu. 

„Málið snýst því ekki aðeins um framtíð eins fjarðar, heldur einnig um það hvaða fordæmi verður skapað fyrir önnur samfélög á Íslandi sem vilja standa vörð um náttúru sína og framtíð komandi kynslóða,“ segir í tilkynningunni. 

Sjá einnig: Hafi verið beggja vegna borðsins

Katrín Oddsdóttir lögmaður stýrði dagskránni á Austurvelli. Vísir/Viktor Freyr
Vísir/Viktor Freyr
Hljómsveitin Eva steig á stokk. Vísir/Viktor Freyr

Birgir Þórarinsson, eða Biggi Veira, var meðal mótmælenda.Vísir/Viktor Freyr
Vísir/Viktor Freyr



Fleiri fréttir

Sjá meira


×