Múlaþing

Múlaþing

Mannfjöldi: 5.232 (2025). Flatarmál: 10.671 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Egilsstaðir, Seyðisfjörður, Brúarás, Eiðar, Fellabær, Hallormsstaður, Djúpivogur, Borgarfjörður eystri.


Fréttamynd

„Ég er bara svo­lítið sár“

Sveitarstjóri Múlaþings segist vonsvikin og sár vegna áforma ríkisstjórnarinnar um breytingar á afsláttarkjörum íbúa á landsbyggðinni af flugferðum. Hún gagnrýnir skort á samráði og segir þetta enn eitt áfallið fyrir landsbyggðina.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Landa­kortið minnkar ekki þótt lög­reglu­stjórum fækki

Áform um að sameina lögregluembættin á Austurlandi, Suðurlandi og í Vestmannaeyjum vekja alvarlegar spurningar um öryggi íbúa og stjórnun löggæslu. Áður en lengra er haldið verður ríkisstjórnin að sýna fram á hvernig breytingarnar eiga að bæta þjónustuna hér fyrir austan.

Skoðun
Fréttamynd

Hafi verið beggja vegna borðsins

Deildarstjóri fiskeldisdeildar Matvælastofnunar segir fyrrverandi starfsmann Fiskeldis Austfjarða ekki hafa komið að áhættumati vegna fyrirhugaðs eldis félagsins í Seyðisfirði. Honum hafi aðeins verið beint tiltekinni spurningu um staðal fyrir eldisbúnað. Katrín Oddsdóttir lögmaður gagnrýnir að leitað hafi verið til hans þrátt fyrir reglu um að hann kæmi ekki að málinu.

Innlent
Fréttamynd

Mót­mæla sjókvíaeldi í tveimur lands­hlutum

Mótmæli gegn sjókvíaeldi Kaldavíkur á Seyðisfirði fara samtímis fram þar og á Austurvelli í dag. Lögmaður segir stefna í fjölmenna fundi enda mikið hitamál fyrir austan og telur hún mikla annmarka á leyfisveitingum.

Innlent
Fréttamynd

Hvað fær Ís­land fyrir Seyðis­fjörð?

Þann 11. september fékk Kaldvík hf. rekstrarleyfi fyrir 10.000 tonna laxeldi í Seyðisfirði. Talsmenn verkefnisins nefna störf, útflutningstekjur og tekjur fyrir ríki og sveitarfélag.

Skoðun
Fréttamynd

Stöndum með Seyðis­firði!

Hversu skýrt þurfa Seyðfirðingar að segja nei áður en á þá er hlustað? Matvælastofnun hefur gefið út leyfi fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði, þvert á vilja 75% Seyðfirðinga sem eru andvígir áformunum. Seyðfirsku grasrótarsamtökin VÁ hafa haldið uppi hetjulegri baráttu gegn þessum áformum og boða nú til mótmæla gegn þeim á sunnudaginn 11. október klukkan 15:00 á Austurvelli.

Skoðun
Fréttamynd

Tíu manns veitt sál­gæsla eftir bana­slysið

Tveir ferðamenn sem fluttir voru þungt haldnir til Reykjavíkur á laugardag eftir fjögurra bíla árekstur á Austurlandi þar sem tveir aðrir létust eru ekki lengur í lífshættu. Samkvæmt upplýsingum frá Rauða krossinum var um tíu manns veitt sálgæsla vegna slyssins.

Innlent
Fréttamynd

Mennirnir sem létust voru feðgar

Mennirnir sem létust í skotárásinni í Halden í Noregi í morgun voru feðgar á áttræðis- og fimmtugsaldri. Þriðji maðurinn er alvarlega slasaður og liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi.

Erlent
Fréttamynd

„Auð­vitað alltaf erfitt að koma að svona vett­vangi“

Mikill fjöldi fólks kom að aðgerðum á Jökuldalsheiði í gær þegar fjögurra bíla árekstur varð við Háreksstaðakvísl. Það voru meðal annars aðilar frá björgunarsveitunum, Landhelgisgæslunni, lögreglunni, Rauða krossinum og slökkviliðinu sem sinntu viðbragðinu. Tveir létust í slysinu og tveir voru fluttir alvarlega slasaðir til Reykjavíkur og eru þungt haldnir.

Innlent
Fréttamynd

Átta í bílunum fjórum: Sumir al­var­lega slasaðir

Hópslysaáætlun var virkjuð á Austurlandi vegna fjögurra bíla áreksturs á Jökuldal við Háreksstaðakvísl í dag. Tilkynnt var að átta væru um borð í bifreiðunum og einhverjir alvarlega slasaðir. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar, björgunarsveitarmenn, lögregla, sjúkralið og Rauði krossinn taka þátt í aðgerðum. Slysið er talið alvarlegt. 

Innlent
Fréttamynd

Austur­land margborgar sig

Austurland leggur meira til ríkissjóðs en það fær til baka. Tekjur ríkissjóðs sem rekja má til landshlutans eru áætlaðar 54,2 milljarðar króna á ári en útgjöldin 45,5 milljarðar. Nettóframlag Austurlands er því 8,7 milljarðar króna á ári.

Skoðun
Fréttamynd

Hvað veistu um… Djúpa­vog?

Djúpivogur er lítið og fallegt þorp á sunnanverðum Austfjörðum, þekkt fyrir rólegt yfirbragð, fallegt umhverfi og sterka tengingu við sjávarútveg.

Lífið
Fréttamynd

„Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“

Benedikta Guðrún Svavarsdóttir er hláturmildur framkvæmdastjóri á Seyðisfirði, hún gerir góðan mat og hefur gaman af því að bjóða fólki í gusur. En hún er einnig grjótharður nagli, formaður Vár – félags um verndun fjarðar og berst nú með oddi og egg gegn ráðabruggi um að koma niður sjókvíum í Seyðisfirði. Þar hefur dregið til tíðinda á undanförnum vikum og dögum.

Innlent
Fréttamynd

Gæti þaggað niður í röddum lands­byggðarinnar

Forseti sveitarstjórnar Múlaþings segir að nýjar tillögur um að færa þingsæti á milli kjördæma geti þaggað niður rödd heilu byggðasvæðanna. Það að öll atkvæði gildi jafnt sé ekki endilega sanngjarnt.

Innlent
Fréttamynd

„Það þarf að hreinsa að­eins loftið“

Formaður heimastjórnar Múlaþings segir það hafa komið sér og öðrum fulltrúum Múlaþings í opna skjöldu að starfsleyfi hafi verið gefið út til fiskeldis í firðinum. Það séu vonbrigði að frumvarp um breytingar á lögum um lagareldi hafi ekki gengið í gegn á síðasta vorþingi. 

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er full­komið á­fall“

Félag um vernd Seyðisfjarðar er hvergi nærri af baki dottið þrátt fyrir að Kaldvík AS hafi fengið rekstrar-og starfsleyfi í gær til fiskeldis í firðinum. Formaður segir undirskriftarsöfnun hafa sýnt fram á að meirihluti bæjarbúa vilji fara aðrar leiðir til atvinnuuppbyggingar í firðinum.

Innlent
Fréttamynd

Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á lands­byggðinni

Skattahækkun á baðlón bítur fastast á landsbyggðinni, segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings. Hún segir Vök við Egilsstaði hafa gjörbylt ferðaþjónustu á Austurlandi og óttast að áform ríkisstjórnarinnar leiði til lokunar baðlónsins hluta úr ári og stöðvi frekari uppbyggingu.

Innlent