Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar 1. október 2026 13:31 Austurland leggur meira til ríkissjóðs en það fær til baka. Tekjur ríkissjóðs sem rekja má til landshlutans eru áætlaðar 54,2 milljarðar króna á ári en útgjöldin 45,5 milljarðar. Nettóframlag Austurlands er því 8,7 milljarðar króna á ári. Þetta jafngildir um 777 þúsund krónum á hvern íbúa árlega, eða um 65 þúsund krónum á mánuði og fer hækkandi. Þessar fjárhæðir sýna með skýrum hætti hversu mikilvægt atvinnulíf og verðmætasköpun á Austurlandi eru fyrir þjóðarbúið. Við Austfirðingar eigum að vera stolt af þessu framlagi. Ég vil að svo verði áfram. Til þess þarf ríkið að fjárfesta í þeim innviðum og þeirri þjónustu sem gera fólki og fyrirtækjum kleift að búa hér, starfa og vaxa. Öflugt atvinnulíf skilar árangri Á Austurlandi búa um 2,8% landsmanna en héðan kemur um fjórðungur alls vöruútflutnings Íslands. Árið 2025 nam vöruútflutningur landshlutans um 224 milljörðum króna. Þegar þjónustuútflutningur er talinn með er heildarútflutningurinn áætlaður um 249 milljarðar. Þá eru um 26% allrar raforku landsins framleidd á Austurlandi. Að baki þessum tölum er vinna fólks og uppbygging fyrirtækja. Sjávarútvegur, álframleiðsla, orkuframleiðsla, fiskeldi og ferðaþjónusta skapa verðmæti sem standa undir lífskjörum langt út fyrir landshlutann. Í kringum þessar greinar starfa fyrirtæki í iðnaði, flutningum, viðhaldi og margvíslegri þjónustu. Árangur þeirra byggist að verulegu leyti á því að hér sé öflug atvinnustarfsemi sem þarf á þekkingu þeirra og þjónustu að halda. Þannig dreifist ávinningur fjárfestinga um samfélagið. Verkefni hjá einu fyrirtæki verða að viðskiptum hjá öðru, störfum fjölgar og forsendur skapast fyrir frekari uppbyggingu. Fiskeldi hefur aukið fjölbreytni Uppbygging fiskeldis á Austurlandi er dæmi um þessa þróun. Greinin hefur bætt við atvinnumöguleika landshlutans og skapað verkefni fyrir fyrirtæki í flutningum, iðnaði og þjónustu. Störfin verða bæði til við eldið sjálft og við vinnslu, viðhald búnaðar og aðra starfsemi sem því fylgir. Áhrifin ná til samfélagsins alls. Fjölbreyttari atvinnutækifæri styrkja forsendur þess að fólk setjist að á Austurlandi og byggi hér framtíð sína. Þau skipta líka máli fyrir ungt fólk sem vill snúa heim að námi loknu og nýta menntun sína í heimabyggð. Áframhaldandi uppbygging fiskeldis þarf að byggjast á vönduðu skipulagi, skýrum kröfum um umhverfisvernd og fyrirsjáanlegum starfsskilyrðum. Fyrirtæki þurfa að geta tekið ákvarðanir til lengri tíma og samfélögin þurfa að geta treyst því að vöxturinn sé ábyrgur. Þannig getum við nýtt tækifærin til að efla atvinnulíf og byggð til framtíðar. Sama á við um aðrar atvinnugreinar Austurlands. Við þurfum að hlúa að því sem þegar hefur byggst upp og skapa um leið svigrúm fyrir nýja starfsemi. Innviðir þurfa að fylgja verðmætasköpuninni Það er lítið samræmi í því að kalla eftir aukinni verðmætasköpun en fresta jafnframt þeim framkvæmdum sem geta gert hana mögulega. Fyrirtæki þurfa öruggar samgöngur, trausta raforkuafhendingu, hafnaraðstöðu og góð fjarskipti. Starfsfólk þeirra og fjölskyldur þurfa húsnæði, skóla, heilbrigðisþjónustu og aðgang að fjölbreyttu námi. Þessir þættir ráða því hvort fjárfesting verður að veruleika, hvort fyrirtæki geta aukið umsvif sín og hvort fólk kýs að búa á svæðinu. Öflugt iðn- og verknám skiptir þar miklu máli. Það gerir ungu fólki kleift að afla sér menntunar í heimabyggð og hjálpar fyrirtækjum að mæta þörf sinni fyrir fagfólk. Þegar nauðsynlegum samgöngubótum, uppbyggingu menntastofnana eða styrkingu annarra grunninnviða er frestað geta tækifæri glatast. Kostnaðurinn birtist þá í fjárfestingum sem verða ekki, störfum sem skapast ekki og tekjum sem skila sér ekki í sameiginlega sjóði. Framlag sem við viljum halda áfram að skila Við eigum ekki að mæla gildi samfélaga eingöngu í skatttekjum. Við erum ein þjóð og sameiginlegir sjóðir eiga að tryggja samtryggingu og jöfn tækifæri fólks óháð búsetu. Krafa Austfirðinga er ekki að hver króna sem hér verður til komi aftur til baka. Við gerum hins vegar kröfu um að stjórnvöld horfi til þess hvað heldur verðmætasköpuninni gangandi. Austurland skilar ríkissjóði 8,7 milljörðum króna umfram þau útgjöld sem rekja má til landshlutans á ári. Það eru sterk rök fyrir því að tryggja svæðinu sanngjarna hlutdeild í opinberri fjárfestingu og skilyrði til áframhaldandi vaxtar. Við viljum halda áfram að leggja mikið af mörkum. Við viljum efla atvinnulífið, fjölga tækifærum og byggja upp samfélög þar sem fólk sér framtíð sína. Ríkisvaldið þarf að taka þátt í þeirri uppbyggingu með raunverulegum framkvæmdum og traustri þjónustu. Á sextíu ára afmælisári Sambands sveitarfélaga á Austurlandi er yfirskriftin „Austurland margborgar sig“. Niðurstöðurnar tala sínu máli. Nú þarf fjárfesting ríkisins að endurspegla það. Höfundur er formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjarðabyggð Fljótsdalshreppur Múlaþing Vopnafjörður Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar