Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson skrifar 13. október 2026 12:00 Mikil umræða hefur skapast um fyrirhugaða starfsemi Kaldvíkur í Seyðisfirði. Það er eðlilegt enda snertir málið framtíð fjarðarins, atvinnulíf, náttúru og samfélag. Skoðanir eru skiptar og mikilvægt að ólík sjónarmið fái að heyrast. Við hjá Kaldvík viljum leggja okkar af mörkum til upplýstrar og málefnalegrar umræðu með auknu gagnsæi, betri upplýsingagjöf og opnu samtali um umhverfisleg, efnahagsleg og samfélagsleg áhrif starfseminnar. Ein þeirra spurninga sem komið hafa fram snýr að því hversu mörg störf fyrirhuguð starfsemi muni skapa á Seyðisfirði. Uppbygging fiskeldis kallar á fjölbreytta þjónustu, meðal annars á sviði flutninga, viðhalds, tæknimála, sjóflutninga og annarrar sérhæfðar starfsemi. Þannig geta efnahagsleg áhrif starfseminnar náð út fyrir fyrirtækið sjálft og skapað ný verkefni og viðskiptatækifæri fyrir fyrirtæki á Seyðisfirði og víðar á Austurlandi. Umfang þessara áhrifa mun þó ráðast af því hvernig uppbyggingunni verður háttað, hversu stór hluti þjónustunnar verður sóttur til fyrirtækja á svæðinu og hvernig starfsemin þróast til framtíðar. Við hjá Kaldvík viljum leggja áherslu á samstarf við fyrirtæki og þjónustuaðila í nærsamfélaginu svo að sem mest af þeirri verðmætasköpun sem starfsemin getur skapað skili sér til svæðisins. Nú þegar starfa sex einstaklingar hjá Kaldvík á öðrum starfsstöðvum félagsins sem hafa áhuga á að flytja störf sín til heimabyggðar á Seyðisfirði þegar starfsemi þar hefst. Þá starfa sex einstaklingar hjá þjónustufyrirtækjum á Austurlandi sem sinna verkefnum tengdum fiskeldinu. Á Seyðisfirði hefur á undanförnum árum verið mikil gróska í menningu, ferðaþjónustu og fjölbreyttri atvinnustarfsemi. Á sama tíma hafa orðið breytingar á hefðbundnum sjávarútvegi og störf tapast. Ekki er nema tæpt ár frá því að Síldarvinnslan ákvað að hætta rekstri fiskimjölsverksmiðju sinnar og tólf einstaklingar misstu vinnuna. Fyrir um ári var tilkynnt að útgerð Gullvers NS yrði hætt og togarinn var seldur. Fiskvinnsla Síldarvinnslunnar lagðist af vorið 2024 en þar störfuðu um 30 manns. Ný atvinnustarfsemi getur því verið mikilvæg viðbót við það fjölbreytta atvinnulíf sem fyrir er, ekki síst þegar kemur að heilsárs störfum og tækifærum fyrir fólk sem vill búa og starfa í heimabyggð. Í umræðunni hefur oft verið vísað til nokkurra ára gamallar viðhorfskönnunar sem sýndi verulega andstöðu við fyrirhugað fiskeldi. Mikilvægt er að taka niðurstöðurnar alvarlega en jafnframt setja þær í samhengi við þátttöku og þær breytingar sem síðan hafa orðið á áformunum. Alls tóku 57 manns þátt í könnuninni, þar af voru 30 alfarið á móti laxeldi. Frá þeim tíma hefur fyrirhuguðum eldissvæðum verið breytt til að koma til móts við ábendingar íbúa, meðal annars um ásýnd fjarðarins, siglingaumferð, mögulega ofanflóðahættu og legu sæstrengs. Eldissvæðið næst byggðinni var tekið út úr umsókninni og staðsetning annarra svæða endurskoðuð með það að markmiði að draga úr áhættu og áhrifum á aðra starfsemi. Við teljum mikilvægt að halda áfram samtali við íbúa, hlusta á ólík sjónarmið og tryggja að umræða um framtíð fjarðarins byggist á skýrum og aðgengilegum upplýsingum. Áhyggjur hafa einnig komið fram af mögulegum áhrifum fiskeldis á ferðaþjónustu, sem gegnir mikilvægu hlutverki í atvinnulífi Seyðisfjarðar. Reynsla frá öðrum byggðarlögum, meðal annars Djúpavogi og Vestfjörðum, sýnir að fiskeldi og ferðaþjónusta geta þróast og dafnað samhliða. Mikilvægt er þó að taka mið af sérstöðu Seyðisfjarðar, hlusta á sjónarmið þeirra sem starfa í ferðaþjónustu og stuðla að því að atvinnugreinarnar geti farið sem best saman og stutt við fjölbreytt og öflugt atvinnulíf. Ef horft er til sögunnar er ekki einsdæmi að fólk spyrji spurninga og hafi varann á þar sem hefja á fiskeldi en það er okkar reynsla þegar fólk hefur séð og kynnst beint hinum jákvæðu áhrifum sem fiskeldið hefur á nærsamfélög þá hefur gjarnan viðhorfið breyst. Við hjá Kaldvík höfum einnig fundið fyrir miklum velvilja hjá íbúum Seyðisfjarðar en til gamans má geta þess að um 30 manns frá Seyðisfirði sóttu um vinnu hjá Kaldvík þegar fyrst var auglýst eftir starfsfólki þar. Við hjá Kaldvík höfum trú á því að ábyrgt fiskeldi geti skapað mikilvæg tækifæri fyrir Seyðisfjörð og Austurland með fjölbreyttari atvinnutækifærum, auknum viðskiptum við fyrirtæki á svæðinu og frekari verðmætasköpun. Við gerum okkur jafnframt grein fyrir því að uppbygging af þessu tagi vekur spurningar og áhyggjur sem mikilvægt er að taka alvarlega. Við hjá Kaldvík ætlum að gera betur í að bæta upplýsingagjöf til íbúa og hagaðila, koma staðreyndum á framfæri, hlusta á sjónarmið og áhyggjur íbúa og svara þeim spurningum sem upp koma um fyrirhugaða starfsemi. Við viljum leggja okkar af mörkum til þess að skapa traustan grundvöll fyrir upplýsta umræðu um framtíð fjarðarins. Það gerum við með auknu gagnsæi, skýrri upplýsingagjöf og samtali þar sem ólík sjónarmið fá að heyrast. Við vitum að traust byggist ekki á orðum einum saman heldur á ábyrgum ákvörðunum og verkum. Markmið okkar er að byggja upp starfsemi sem tekur mið af náttúru og sérstöðu Seyðisfjarðar og getur skapað varanleg verðmæti fyrir samfélagið til framtíðar. Höfundur er öryggis- og fræðslustjóri Kaldvíkur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Múlaþing Sjókvíaeldi Fiskeldi Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun