Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 3. nóvember 2026 08:32 Ég hef ásamt öðrum þingmönnum í Flokki fólksins lagt fram þingsályktunartillögu þar sem lagt er til að ríkisstjórninni verði falið að undirbúa og leggja fram frumvarp sem skapi lagagrundvöll fyrir varanlegri búsetu í samþykktum færanlegum búsetueiningum á svæðum sem sveitarfélög hafa sérstaklega skipulagt til slíkrar búsetu. Hún tekur meðal annars til hjólhýsa og húsbíla. Markmiðið er að fólk sem kýs þetta búsetuform geti búið við öryggi og mannsæmandi aðstæður án þess að þurfa stöðugt að óttast um framtíð sína. Þetta er málefni sem ég þekki vel frá árum mínum í borgarstjórn Reykjavíkur. Barátta hjólabúa fyrir tilverurétti sínum hefur staðið árum saman. Þetta fólk hefur búið við mikla óvissu, tímabundnar lausnir og aðstæður sem enginn ætti að þurfa að sætta sig við. Frá Laugardal að Sævarhöfða Um árabil hafði hópur fólks fasta búsetu í hjólhýsum og húsbílum á tjaldsvæðinu í Laugardal. Þegar ákveðið var að hætta að bjóða langtímadvöl þar árið 2023 var fólkinu fundin tímabundin aðstaða við Sævarhöfða. Þessi lausn átti aðeins að vara í nokkra mánuði en nú eru liðin rúm þrjú ár og fólkið hefur enn ekki fengið varanlega lausn. Aðbúnaðurinn við Sævarhöfða hefur verið ömurlegur. Svæðið var aldrei ætlað til varanlegrar búsetu og nú hefur rafmagn verið tekið af íbúunum til að tryggja að fólkið hafi sig á brott. Hvar er miskunn borgarstjórnarmeirihlutans? Miskunnarleysið sem núverandi meirihluti í borgarstjórn sýnir þessu fólki er með ólíkindum. Fyrri meirihluti í borginni hafði samið um aðstöðu fyrir Samtök hjólabúa í Gufunesi, en nýr meirihluti ákvað að rifta þeim samningi einhliða án þess að bjóða íbúunum aðra lóð í staðinn. Að skilja þetta fólk eftir án raunhæfrar lausnar er sannarlega ómanneskjulegt. Hvert á fólkið að fara? Er það virkilega ásættanleg niðurstaða að vísa fólki frá heimilum sínum án þess að raunhæf lausn sé í sjónmáli? Borgaryfirvöld hafa vísað til lagalegra hindrana, kostnaðar og öryggissjónarmiða. Þau sjónarmið þarf að taka alvarlega. En þau leysa borgina ekki undan þeirri ábyrgð að sýna fólki mannúð og leita leiða til að tryggja því viðunandi aðstæður. Á bak við hvert hjólhýsi er manneskja. Hjólhýsin eða húsbílarnir eru heimili fólks, umgjörð um daglegt líf þess, og þar eru kannski allar eigur þess. Það er ekki einungis hægt að skoða mál þessa fólks út frá skipulagi og reglugerðum. Það verður að taka tillit til öryggis og mannlegrar reisnar þessa hóps. Lög þurfa að taka mið af raunveruleikanum Núverandi lög og reglur gera ekki með skýrum hætti ráð fyrir varanlegri búsetu í færanlegum búsetueiningum. Sveitarfélög hafa meðal annars vísað til þess að lagagrundvöll skorti til að skipuleggja slík svæði. Tillagan nær ekki aðeins til hjólhýsa og húsbíla heldur einnig annarra færanlegra búsetueininga sem geta verið raunhæfur og hagkvæmur búsetukostur. Skoða þarf breytingar á skipulagslögum, mannvirkjalöggjöf og reglum um lögheimilisskráningu. Jafnframt þarf að tryggja öryggi, hreinlæti, nauðsynlega þjónustu og skýra réttarstöðu íbúanna. Sveitarfélögin halda ákvörðunarvaldinu Í greinargerð með tillögunni er tekið fram að sveitarfélögin muni áfram ákveða hvort og hvar slík búsetusvæði yrðu skipulögð. Tillagan felur ekki í sér að sveitarfélögin verði skylduð til að útvega svæði fyrir þetta búsetuform. En takist að skapa skýran lagagrundvöll verður ekki lengur hægt að vísa eingöngu til þess að lögin heimili ekki búsetu sem þessa. Enn er nokkur vegur í land. Tillagan þarf að hljóta brautargengi á Alþingi og eftir það á ríkisstjórnin eftir að skoða til hvaða lagabreytinga þyrfti að grípa til að heimila búsetu sem þessa. Hugsanlegar lagabreytingar í framtíðinni leysa hins vegar ekki bráðavanda fólksins sem nú hefur verið gert að yfirgefa svæðið á Sævarhöfða. Það er nauðsynlegt að bregðast við þeirri stöðu núna. Fólk hefur ólíkar þarfir, ólíkan fjárhag og ólíkar óskir um hvernig það vill búa. Við þurfum ekki öll að búa eins. Það eiga allir hins vegar rétt á að lifa við mannsæmandi aðstæður. Heimili er heimili þótt það standi á hjólum. Höfundur er þingkona Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð Skoðun Skoðun Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson skrifar Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Að geta gert ráð fyrir góðu lífi Guðmundur Ármann Pétursson skrifar Skoðun Íslensk bókhaldsgögn eiga heima innan Evrópu Jóhann Tómas Sigurðsson skrifar Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum Gunnar M. Gunnarsson skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða skrifar Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir skrifar Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson skrifar Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Sjá meira
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun