Skoðun

Er að eignast barn sam­fé­lags­leg busun?

Stefnir Húni Kristjánsson skrifar

Mín upplifun er einföld: kerfið vinnur ekki með nýjum foreldrum.

Fæðingarorlof er tólf mánuðir. Engin brú tekur við þegar því lýkur og sveitarfélögum ber engin skylda til að taka við barninu í leikskóla. Haustið 2025 var barn að meðaltali um 22 mánaða þegar það byrjaði í borgarreknum leikskóla í Reykjavík. Foreldrar þurfa því að brúa um tíu mánuði sjálfir, með launalausu leyfi, dagforeldri, ömmum og öfum eða einhverju púsluspili sem rétt sleppur.

Á sama tíma er barnið aldrei dýrara. Búnaður, stærra húsnæði, dagforeldri og svo leikskólagjöld. Kostnaðurinn er mestur á fyrstu árunum.

Og hver ber hann? Ungir foreldrar. Fólk sem er nýkomið út á vinnumarkaðinn, oft nýbúið að taka hæsta lán ævinnar og á lægstu launum sem það mun hafa á starfsævinni.

Svo er fólki refsað fyrir að eignast börn með stuttu millibili. Ég eignaðist tvö börn með 14 mánaða millibili. Greiðslur í fæðingarorlofi miðast við laun á tólf mánaða tímabili sem lýkur sex mánuðum fyrir fæðingu. Þegar stutt er á milli barna lendir fyrra orlofið inni á því tímabili. Seinna orlofið er þá reiknað af greiðslum sem voru sjálfar aðeins 80% af laununum.

Staðreyndin var einfaldlega sú að ég hafði ekki efni á að taka fæðingarorlof.

Heildartími minn á vinnumarkaði breyttist ekkert. Ég hefði unnið nákvæmlega jafn mikið og borgað sömu skatta þótt ég hefði beðið í tvö ár í viðbót. Af hverju er verið að refsa mér og dóttur minni fyrir að ég beið ekki lengur? Svíþjóð og Noregur verja foreldra gegn þessu. Hér er fólki refsað fyrir að eignast börn.

Svo léttist róðurinn eftir því sem börnin eldast. Við sex ára aldur tekur skólaskyldan við og foreldrið hættir að borga. Leikskólinn getur hins vegar verið dýr, sérstaklega fyrir þá sem hafa ekki fengið styttingu vinnuvikunnar og þurfa lengri vistun. Af hverju borgar foreldri fimm ára barns en ekki foreldri sex ára barns? Hvaða rök eru fyrir því önnur en að svona hafi þetta alltaf verið?

Kerfið er í raun hannað öfugt. Byrðin er þyngst þegar foreldrar eru tekjulægstir og léttist eftir því sem þeir hækka í launum. Fólk lækkar ekki í launum með aldrinum, það hækkar.

Þegar maður bendir á þetta er svarið nær alltaf það sama: þetta hefur alltaf verið erfitt.

Ég efast ekki um það. Það var erfitt fyrir foreldra okkar og fyrir foreldra þeirra. Sumt er meira að segja erfiðara í dag, eins og húsnæðisverðið. Mín kynslóð kemst oft ekki inn á húsnæðismarkaðinn fyrr en um þrítugt, mun seinna en foreldrar okkar.

En ég ætla ekki í keppni um hvort það sé erfiðara í dag eða í gamla daga. Það skiptir í raun ekki máli.

Stærri spurningin er: Af hverju þarf þetta að vera erfitt yfir höfuð?

Og þetta skiptir máli. Frjósemi á Íslandi fór undir tvö börn á hverja konu árið 2013 og hefur ekki náð því aftur. Árið 2025 var hún 1,56, sú lægsta sem mælst hefur. Það þarf um 2,1 til að kynslóðir endurnýi sig. Við erum hætt að endurnýja okkur. Við höfum ekki efni á kerfi sem gerir fólki erfiðara fyrir að eignast börn.

Að eignast barn er ekki einkamál sem kemur samfélaginu ekkert við. Börnin sem fæðast í dag munu manna spítalana, borga lífeyrinn og halda samfélaginu gangandi eftir 25 ár. Samt förum við með fyrstu árin eins og busun.

Er ekki kominn tími til að hætta að busa nýja foreldra?

Lengjum fæðingarorlof í 18 mánuði. Hættum að refsa fólki fyrir stutt bil milli barna eða að það sé að koma úr námi. Skyldum sveitarfélög til að taka við börnum frá 18 mánaða aldri. Og miðum gjaldfrjálsa vistun við lengstu vinnuskylduna á vinnumarkaði, ekki þá stystu.

Höfundur er verkfræðingur.




Skoðun

Sjá meira


×