Faraldurinn í hægri rénun samkvæmt nýju spálíkani Kristín Ólafsdóttir skrifar 29. september 2020 14:12 Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands, sem fer fyrir teyminu við HÍ sem vinnur spálíkan um líklega þróun Covid-19 á Íslandi. Vísir/Stöð 2
Líklega munu á bilinu 20 til 40 greinast með kórónuveiruna daglega næstu daga, samkvæmt nýju spálíkani um faraldurinn hér á landi. Spáin bendir til þess að nýsmitum fari hægt fækkandi og þá virðist smitstuðull einnig fara lækkandi, sem gefur til kynna að verið sé að ná utan um þessa þriðju bylgju faraldursins sem nú stendur yfir. Vísindafólk frá Háskóla Íslands, embætti landlæknis og Landspítala hefur unnið að gerð spálíkans um líklega þróun faraldursins á Íslandi. Ný spá var birt í dag. Líkt og áður segir má búast við um 20 til 40 nýjum smitum á dag næstu daga. Fjöldi nýgreindra á dag gæti þó orðið hátt í 70 en á því eru taldar minni líkur. Eftir þrjár vikur er líklegt að daglegur fjöldi nýgreindra smita verði á bilinu 10 til 30 á dag, en gætu orðið hátt í 60 nýgreind smit. Þá er uppsafnaður fjöldi smitaðra í þessari þriðju bylgju faraldursins, frá 13. september, 506 en eftir þrjár vikur er líklegt að uppsafnaður fjöldi verði á bilinu 800 til 1100 tilvik. Hann gæti þó orðið allt að 1650, samkvæmt spálíkaninu. Myndin sýnir þróun greindra innanlandssmita á Íslandi frá 13. september 2020 og spá fyrir næstu þrjár vikur. Efra grafið sýnir nýgreind smit og neðra grafið sýnir uppsafnaðan fjölda smita. Punktarnir á myndunum sýna raunverulegan fjölda smita samkvæmt nýjustu gögnum. Þá benda útreikningar til þess að núverandi smitstuðull utan sóttkvíar sé um einn. Smitstuðull segir til um það hvað einstaklingur sem sýkist mun að jafnaði smita marga aðra. Ef smitstuðullinn er fjórir mun hver og einn að jafnaði sýkja fjóra aðra, sem sýkja fjóra aðra og svo koll af kolli sem birtist í hinum margumtalaða veldisvísisvexti. Þó að óvissan í þessum efnum sé talsverð virðist smitstuðullinn fara lækkandi. „Þessa lækkun má líklega rekja til öflugrar smitrakningar og aukinnar vitundarvakningar um persónubundnar sóttvarnir í samfélaginu. Meðal smitstuðull alls tímabilsins fyrir einstaklinga í sóttkví er metinn 0.6 (95% líkindabil: 0,3-0,9), sem bendir til þess að sóttkví sé mjög öflug sóttvarnaaðgerð,“ segir á vef spálíkansins. Hér má sjá mat á smitstuðlinum utan sóttkvíar eins og lýst var í síðustu rýni (25. september) þar sem tekið er tillit til hlutfalls einstaklinga sem greinist í sóttkví. Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands, segir í samtali við Vísi að spáin bendi til þess að faraldurinn sé á hægri niðurleið. Ýmis jákvæð teikn séu á lofti, til dæmis að smitstuðullinn sé kominn í kringum einn – þó að óvissan sé vissulega mikil. „Það þýðir að það sé búið að ná að einhverju leyti utan um þetta. Annars væru miklu fleiri smit miðað við allan þann fjölda sem er búinn að smitast. Árangurinn er út af sóttkví að einhverju leyti. Þetta kemur ekki rosalega á óvart, þannig lagað,“ segir Thor. Nýgengi á Íslandi með því mesta í Evrópu 32 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær en 39 daginn þar áður. Sautján þeirra sem greindust í gær voru í sóttkví við greiningu. Alls eru fimm nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af tveir á gjörgæslu. Ekkert smit greindist á landamærum í gær. Nýgengi smita er hvergi meira á Norðurlöndunum í augnablikinu en á Íslandi. Hér á landi eru 139 smit síðustu fjórtán daga á hverja 100 þúsund íbúa. Aðeins Danmörk kemst nálægt Íslandi af Norðurlöndunum með 125 smit. Í Svíþjóð er hlutfallið 43, 29 í Noregi og 20 á hundrað þúsund íbúa í Finnlandi samkvæmt samantekt Sóttvarnarstofnunar Evrópu. Ísland er í sjöunda sæti Evrópuþjóða þegar kemur að nýgengi smita. Spánn er með flest smit eða 329 smit, Tékkland með 269, Frakkland 232, Lúxemborg 184, Holland 180 og Belgía 175 á hverja þúsund íbúa. Þar á eftir kemur Ísland.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir 32 greindust innanlands og tveir nú á gjörgæslu 32 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Sautján þeirra sem greindust voru í sóttkví við greiningu. 29. september 2020 11:04 Sótthreinsuðu verslun Hagkaups hátt og lágt eftir að smit kom upp Verslunarkeðjan Hagkaup greinir frá því að starfsmaður verslunarinnar í Spöng í Grafarvogi hafi greinst jákvæður með Covid-19 í gær. 29. september 2020 11:19 Dómsdagsspár vegna Afríku og Covid-19 rættust ekki Vísindamenn velta nú vöngum yfir því af hverju Afríka virðist hafa sloppið svo vel frá heimsfaraldri nýju kórónuveirunnar. 29. september 2020 09:59 Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira
32 greindust innanlands og tveir nú á gjörgæslu 32 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Sautján þeirra sem greindust voru í sóttkví við greiningu. 29. september 2020 11:04
Sótthreinsuðu verslun Hagkaups hátt og lágt eftir að smit kom upp Verslunarkeðjan Hagkaup greinir frá því að starfsmaður verslunarinnar í Spöng í Grafarvogi hafi greinst jákvæður með Covid-19 í gær. 29. september 2020 11:19
Dómsdagsspár vegna Afríku og Covid-19 rættust ekki Vísindamenn velta nú vöngum yfir því af hverju Afríka virðist hafa sloppið svo vel frá heimsfaraldri nýju kórónuveirunnar. 29. september 2020 09:59