Innlent

45 greindust innan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
Innan við helmingur, eða 47 prósent, af þeim sem greindust í gær voru í sóttkví.
Innan við helmingur, eða 47 prósent, af þeim sem greindust í gær voru í sóttkví. Vísir/Vilhelm

Alls greindust 45 með kórónuveiruna innanlands í gær. 21 þeirra sem greindist voru í sóttkví við greiningu, en 24 ekki. Það svarar til þess að 47% hafi verið í sóttkví sem er nokkuð lægra hlutfall en verið hefur undanfarið.

Fram kemur í uppfærðum tölum á Covid.is að alls séu nú 23 á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af þrír á gjörgæslu. Í gær voru 25 á sjúkrahúsi og þrír á gjörgæslu.

Eitt smit greindist á landamærum í gær og er þar niðurstaða mótefnamælingar beðið.

1.206 manns eru nú í einangrun, samanborið við 1.252 í gær. Þá eru 2.531 í sóttkví í dag, samanborið við 2.375 í gær.

Af þeim 45 sem greindust í gær, greindust 37 eftir að tekin voru svokölluð einkennasýni hjá Landspítalanum eða Íslenskri erfðagreiningu, en átta greindust eftir svokallaða sóttkvíar- eða handahófsskimun.

Þriðja bylgjan

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 266,2 en var 277,6 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 21,8, en var 20,5 í gær.

Nú hafa 4.230 manns greinst smitaðir af kórónuveiru frá upphafi faraldursins. Ellefu þeirra sem hafa veikst af Covid-19 eru látnir.

Alls voru tekin 981 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 318 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. 434 sýni voru tekin við sóttkvíar- og handahófsskimun og þá voru tuttugu sýni tekin í annarri skimun hjá ÍE.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×