Sálfræðingur sýknaður af broti gegn barni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. nóvember 2020 17:18 landsréttur Foto: Egill/Egill Aðalsteinsson
Landsréttur hefur sýknað sálfræðing um sextugt sem ákærður var fyrir að brjóta kynferðislega á fyrrverandi stjúpdóttur sinni árið 2017. Karlmaðurinn fékk 2,5 ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness sumarið 2019. Landsréttur taldi ákæruvaldið ekki hafa sýnt fram á sekt mannsins gegn staðfastlegri neitun hans. Sálfræðingurinn var sakaður um að hafa brotið á fyrrum stjúpdóttur sinni eftir að hafa boðið henni í mat. Strauk hann henni innan og utan klæða, klóraði og strauk rassi hennar og setti fingur í endaþarm. Þá kyssti hann hana blautum kossi á enni, kinn og læri áður en hann lagðist þétt upp að henni svo hún fann fyrir kynfærum hans við rassinn. Í niðurstöðu Landsréttar kemur fram að héraðsdómur hafi byggt niðurstöðu sína á framburði stúlkunnar sem metinn var trúverðugur og auk þess talinn fá stoð í framburði annarra vitna, meðal annars hjá syni sálfræðingsins. Framburður breyttur eftir fund Stúlkan gaf tvívegis skýrslu í Barnahúsi með um mánaðar millibili, annars vegar í desember 2017 og hins vegar í janúar 2018. Í seinni skýrslunni mun framburðurinn hafa verið nokkuð breyttur. Þar lýsti stúlkan þeirri háttsemi sem ákæra málsins byggðist á. Fyrir lá að áður en síðari skýrslutakan í Barnahúsi fór fram hefði átt sér stað fundur móður stúlkunnar og barnsmóður sálfræðingsins. Var stúlkan og sonur sálfræðingsins viðstödd. Þá lá einnig fyrir að áður en stúlkan gaf síðari skýrsluna í Barnahúsi hefði hún verið í meðferð hjá sálfræðingi þar sem atvik voru rifjuð upp. Þótt framburður stúlkunnar hefði við síðari skýrslugjöfina virst einlægur og teldist skýr þá hefði framburður hennar fyrir dómi ekki verið stöðugur, enda hefði hann tekið nokkrum breytingum milli viðtalanna í Barnahúsi. Auk þess var talið að atvik sem áttu sér stað á því tímabili væru til þess fallin að hafa áhrif á framburð stúlkunnar og draga úr trúverðugleika hans. Einn í herbergi með stúlkunni en hve lengi? Þá var ekki talið að framburður stúlkunnar og sakfelling ákærða fengi sérstaka stoð í framburði sonar sálfræðingsins. Þrátt fyrir að nokkrar mínútur bæri á milli í frásögn sálfræðingsins og sonar hans af því hversu lengi sálfræðingurinn og stúlkan hefðu verið ein inni í herbergi var það ekki talið leiða til þess að framburður hans í heild teldist ótrúverðugur. Sálfræðingurinn var talinn hafa verið stöðugur og samkvæmur sjálfum sér í framburði sínum. Var ekki talið að ákæruvaldinu hafi gegn eindreginni neitun sálfræðingsins tekist að færa sönnur á að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem lýst var í ákæru. Var sálfræðingurinn því sýknaður. Sálfræðingurinn sætti annarri ákæru fyrir kynferðisbrot á fjórtán ára dreng. Ákæran var gefin út í mars eftir að málið hafði verið endurupptekið. Meint brot átti sér stað upp úr aldamótum en drengurinn var í sálfræðimeðferð hjá honum í grunnskóla. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, verjandi mannsins, segir í samtali við Vísi að ákæruvaldið hafi fallið frá ákæru tíu dögum áður en aðalmeðferð átti að fara fram. Réttargæslumaður meints brotaþola kærði ákvörðun héraðssaksóknara um að láta ákæruna falla niður 29. október. Ríkissaksóknari á að taka afstöðu til kærunnar innan þriggja mánaða. Fréttin hefur verið uppfærð.
Dómsmál Ofbeldi gegn börnum Tengdar fréttir Trúði „virðulegum sálfræðingi“ á sínum tíma Fyrrverandi skólastjóri og sérkennari í grunnskóla í Reykjanesbæ þar sem karlmaður segist hafa verið misnotaður af skólasálfræðingi sem barn segjast búa yfir upplýsingum sem gætu skipt máli í málinu. 19. júní 2020 09:01 Sálfræðingur sem braut gegn stjúpdóttur þarf að svara fyrir gamlar ásakanir um brot gegn ungum dreng Sálfræðingur um sextugt sem dæmdur var í tveggja og hálfs árs fangelsi sumarið 2019 fyrir að brjóta kynferðislega á fyrrverandi stjúpdóttur sinni hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn fjórtán ára dreng upp úr aldamótum. 18. mars 2020 09:00 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira
Trúði „virðulegum sálfræðingi“ á sínum tíma Fyrrverandi skólastjóri og sérkennari í grunnskóla í Reykjanesbæ þar sem karlmaður segist hafa verið misnotaður af skólasálfræðingi sem barn segjast búa yfir upplýsingum sem gætu skipt máli í málinu. 19. júní 2020 09:01
Sálfræðingur sem braut gegn stjúpdóttur þarf að svara fyrir gamlar ásakanir um brot gegn ungum dreng Sálfræðingur um sextugt sem dæmdur var í tveggja og hálfs árs fangelsi sumarið 2019 fyrir að brjóta kynferðislega á fyrrverandi stjúpdóttur sinni hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn fjórtán ára dreng upp úr aldamótum. 18. mars 2020 09:00