Skoðun

Nýtum tímann til að undir­búa fram­tíðina

Sólborg Lilja Steinþórsdóttir skrifar

Staða menntunar í ferðaþjónustu stendur frammi fyrir miklum áskorunum vegna Covid-19, sem sumir kjósa að kalla „kófið“. Aðsókn hefur minnkað í fagnám og sömuleiðis hefur þeim vinnustöðum fækkað sem geta tekið nema á námssamning.

Það hljómar ekkert sérlega spennandi fyrir ungt fólk núna að fara í starfsnám þar sem öll umfjöllun um atvinnugreinina er frekar neikvæð í augnablikinu og atvinnumöguleikar fáir.

Mannauðurinn skiptir sköpum

Við vitum að fagmennska er einn af lykilþáttum í að tryggja gæði ferðaþjónustunnar um leið og það styrkir ímynd Íslands út á við. Öll sem sækja landið heim vita að náttúran er einstök en við viljum að þau fari heim með þá upplifun að dvölin hafi farið langt fram úr væntingum þeirra. Þegar farið er fram úr væntingum þínum ertu ekki að velta fyrir þér hvað ferðin kostaði því þú fékkst meira en þú áttir von á.

Í aukinni samkeppni um ferðafólk skipta gæðin máli og ferðaþjónustan hefur undanfarin ár fjárfest gríðalega til að bæta aðstöðu og aðbúnað, enda er það mikilvægt fyrir framtíðarmöguleika ferðaþjónustu á Íslandi. Samkeppnin setur um leið enn meiri pressu á að innviðirnir séu sterkir. Mannauðurinn og þekking á hvernig taka skal á móti gestum skiptir sköpum um heildarupplifunina og því mikilvægt að nýta tímann núna til undirbúnings.

Styðja þarf við nám í ferðaþjónustu

Til að tryggja gæðin þurfum við fagfólk. Fagmennska og menntun eru einnig lykilatriði þegar kemur að nýsköpun í matvælageiranum. En sú nýsköpun er einkar mikilvæg fyrir áframhaldandi sjálfbærni okkar sem þjóð.

Nútíminn kallar á snör viðbrögð og ríkulegan stuðning við nám í ferðaþjónustu almennt og þá sérstaklega innan matvælagreinanna.

Tryggja þarf að fagnám í verknámi geti átt sér stað þó svo að atvinnulífið sé í erfiðleikum. Ein hugmynd er sú að nýta eitthvað af auðu húsnæði (hótel og veitingastaði) sem tímabundinn námstað til að hægt sé að halda uppi verklegu námi sem annars ætti heima úti í atvinnulífinu.

Skoða mætti möguleika á námskeiðum fyrir erlenda vinnuaflið okkar (sem misst hefur vinnuna) á starfstengdri íslenskukennslu sem um leið myndi auka möguleika þeirra á raunfærnimati. Þannig værum við að auka færni og þekkingu þessa hóps fyrir framtíðina. Sem og að auka líkurnar á að við fáum þau aftur inni í ferðaþjónustuna þegar kófinu léttir.

Tökum á móti gestum með faglegum hætti

Það er álit margra hagfræðinga og sannfæring mín að um leið og möguleikar fólks til ferðalaga opnast á ný munu margir vilja njóta menningar og ósnortinnar náttúru Íslands.

Því skiptir sköpum að nýta tímann vel og undirbúa okkur sem best til að geta verið áfram í fremstu röð. Við viljum taka á móti gestum með faglegum hætti og um leið setja okkur markmið um að vera einn af eftirsóttustu ferðamannastöðum heims.

Þannig getum við tryggt áframhaldandi vilja ungs fólks til að mennta sig í spennandi og gefandi atvinnugrein sem lagt hefur mikinn metnað í uppbyggingu til framtíðar.

Með gæði og þjónustu að leiðarljósi

Nýtum tímann, orku, fjármuni og mannauðinn til að efla en frekar ferðaþjónustuna og mætum til leiks að kófi loknu með sterka innviði.

Við ætlum okkur að byggja aftur upp sterka atvinnugrein sem áður hefur komið okkur út úr efnahagslegum erfiðleikum og mun gera það aftur. Ef við vöndum okkur og höfum gæði og þjónustu að leiðarljósi.

Höfundur er formaður starfsgreinaráðs matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreina.




Skoðun

Sjá meira


×