Haukur Helgi hefur jafnað sig af COVID-19 og verður með landsliðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. nóvember 2020 11:21 Haukur Helgi Pálsson í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Bára
Íslenska landsliðið mun njóta liðsinnis Hauks Helga Briem Pálssonar í leikjunum í búbblunni í Slóvakíu í forkeppni HM 2023. KKÍ segir frá því að þessi sterki leikmaður muni spila með liðinu í þessum leikjum. Í kvöld verða allir leikmenn mættir á liðshótelið fyrir utan Hauk Helga Briem Pálsson sem ferðast til Slóvakíu á þriðjudags- eða miðvikudagskvöld frá Andorra en hann þarf að skila neikvæðri niðurstöðu úr seinni COVID skimuninni sinni áður en hann mætir á svæðið og inn í „búbbluna“. Haukur Helgi @haukurpalsson búinn að ná sér og verður með íslenska liðinu í Slóvakíu! https://t.co/gQVgRbgQD7#korfubolti pic.twitter.com/mIdRJ5GRYw— KKÍ (@kkikarfa) November 23, 2020 Haukur Helgi hafði greinst með kórónuveiruna í upphafi mánaðarins en hann hefur jafnað sig og er búinn að mælast neikvæður fyrir helgi og er með mótefnamælingu úr blóðprufu en samkvæmt reglum FIBA þarf að skila þessari seinni niðurstöðu úr prófi sem hann fer í á morgun þriðjudag. Það kemur fram í frétt KKÍ að mikil vinna hafi farið í það að ná saman lausum endum til að láta allt ganga upp og nú er það allt frágengið. Það er því ljóst að allir leikmenn og starfsmenn komast í „búbbluna“ og verða klárir fyrir fyrsta leik gegn Lúxemborg. Það fer vel um liðið á hótelinu og mannskapurinn er kátur að hittast og vera saman. Framundan er fyrsta liðsæfing hópsins í keppnishöllinni seinnipartinn og verður æft áfram á morgun og miðvikudag í undirbúningi liðsins fyrir leikina tvo.
Körfubolti HM 2023 í körfubolta Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Fótbolti Fleiri fréttir Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Sjá meira