Sama lægðin stjórnar áfram veðrinu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. nóvember 2020 07:22 Myndin er tekin í gulri viðvörun á höfuðborgarsvæðinu í gær en viðvörunin er nú fallin úr gildi. Vísir/Vilhelm Gular viðvaranir eru enn í gildi á suður- og vesturhelmingi landsins og verða í gildi á flestum svæðum fram á morgundaginn.
Í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofunni segir að áfram stjórni sama lægðin veðrinu á öllu landinu og er spáð suðvestanátt, þrettán til tuttugu metrum á sekúndu og éljaveðri eins var í gær. Þó er dálítið minni ákefð í éljahryðjunum og vindurinn örlítið minni. Hægari og þurrt að kalla fyrir austan. Á Suðurlandi á veðrið til að mynda að ganga niður í dag og fellur gula viðvörunin úr gildi klukkan tvö. Landsmenn urðu vafalaust margir varir við eldingar sem fylgdu hríðinni í gærkvöldi og voru töluvert margar slíkar taldar á Veðurstofunni frá hádegi í gær samkvæmt korti á vef stofnunarinnar. Veðurhorfur á landinu: Suðvestan 13-20 og él, en hægari vindur og þurrt að kalla austanlands. Suðvestan 10-18 á morgun, hvassast norðvestantil, en hægari vindur um sunnan- og suðaustanvert landið. Dálítil él sunnan- og vestanlands. Dregur enn frekar úr vindi annað kvöld, suðlæg átt 3-10 þá. Hiti nálægt frostmarki. Á laugardag: Suðvestan 10-18 m/s, hvassast um landið norðvestanvert. Hægari vindur eftir hádegi. Él, en þurrt og bjart austanlands. Hiti nálægt frostmarki. Á sunnudag: Norðlæg átt, 5-13 m/s og slydda eða snjókoma með köflum. Vestlægari sunnantil á landinu og dálítil él, en þurrt síðdegis. Frost 0 til 4 stig, en hiti 0 til 2 stig með suðurströndinni. Á mánudag: Hæg breytileg átt og þurrt á landinu fyrir hádegi. Vaxandi suðaustanátt síðdegis og þykknar upp, fer að snjóa eða slydda um kvöldið. Frost 2 til 8 stig, en hlýnar er líður á daginn. Á þriðjudag: Sunnan strekkingur og rigning, en snýst síðar í stífa suðvestanátt með skúrum eða slydduéljum, en léttir til um landið norðaustanvert. Hiti 1 til 7 stig, mildast syðst. Á miðvikudag: Suðlæg átt og él á sunnanverðu landinu. Hvöss norðaustanátt og snjókoma á Vestfjörðum. Úrkomulítið norðaustanlands. Kólnandi.
Veður Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Sjá meira