„Það er enginn að biðja fólk um að sitja lokað inni og hafa ekki samskipti við nokkurn mann“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 30. nóvember 2020 08:37 Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hefur skilað nýjum tillögum að sóttvarnaaðgerðum til heilbrigðisráðherra. Núverandi aðgerðir gilda til og með morgundeginum. Vísir/Egill Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hefur skilað Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, tillögum sínum að næstu sóttvarnaaðgerðum. Hann vill ekki segja hvað í þeim felst nákvæmlega þar sem ráðherra sé enn með þær til skoðunar en ítrekar að í ljósi bakslags í faraldrinum síðastliðna dagana telji hann ekki mikið tilefni til tilslakana.
Þá segir hann smit hjá Víði Reynissyni, yfirlögregluþjóni, og í nærumhverfi hans sýna hvað veiran sé lúmsk og að ekki þurfi mikið til. Rætt var við Þórólf í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þar var hann spurður út í smit Víðis en Víðir greindi frá því sjálfur um helgina hverja hann hafði hitt helgina 21.-22. nóvember og hverjir hefðu því verið útsettir fyrir smiti. Alls var um að ræða tólf manns sem komu í heimsókn til Víðis og konu hans; vinahjón þeirra sem gistu hjá þeim vegna þess að þau þurftu að sækja læknisþjónustu í Reykjavík, dætur vinahjónanna sem komu í kaffi, önnur vinahjón og svo börn, barnabörn og tengdabörn. Alls hafa fimm aðrir úr hópnum, fyrir utan Víði og konu hans, sem var sú fyrsta til að greinast, greinst með Covid-19. Góðan og blessaðan daginn. Nú er ég á fjórða degi veikinda vegna Covid-19. Einkennin voru í fyrstu væg en í gær vorum...Posted by Víðir Reynisson on Saturday, November 28, 2020 Eins og Vísir fjallaði um í gær hafa batakveðjurnar streymt til Víðis, sem er nú á sjötta degi veikinda, en einnig heyrast gagnrýnisraddir vegna gestakomanna. Á meðal þeirra sem gagnrýnt hafa Víði er Jóhanna Jakobsdóttir, líftölfræðingur sem er ein þeirra sem vinna að spálíkani Háskóla Íslands vegna faraldursins. Hún ritaði færslu á Facebook-síðu sína á gær sem fjallað var um á vef Hringbrautar. Í færslunni sagðist hún vera í áfalli yfir því hve margir hefðu komið inn á heimili Víðis á stuttum tíma. Ef allir myndu hitta tíu manns heima hjá sér á 48 klukkustunda tímabili þá værum við í vondum málum, skrifaði Jóhanna. Þá væru smitin ekki endilega kaffikönnunni að kenna heldur dugi tveir metrar ekki í litlu rými líkt og sé viðvarandi ástand á flestum heimilum þessa dagana. Í Bítinu í morgun kvaðst Þórólfur ekki hafa lesið færslu Víðis en hann talaði mikið við hann og þeir hefðu rætt málið fram og til baka. „Þetta sýnir bara hvað hún getur verið lúmsk þessi veira og það þarf ekkert mikið til, það þarf í raun og veru bara mjög lítið til að maður geti smitast. En eftir því sem að snertipunktarnir og samskipti við færri eru þá eru minni líkur á ef maður smitast að maður dreifi því sjálfur áfram og það er það sem við erum að hamra á að passa hópamyndanir. Við erum ekkert að útskúfa og ráðast á þá sem að smitast og skamma þá fyrir að þeir hafi gert eitthvað eða hvernig þeir hafa fengið þetta smit. Við höfum alltaf talað um það að við eigum að ráðast á þessa veiru og veiran er óvinurinn,“ sagði Þórólfur. Aðspurður hvort það væri hins vegar æskilegt fá tólf manns í heimsókn á 48 klukkutímum, þótt allir væru ekki að koma á sama tíma, svaraði Þórólfur neitandi en benti á að fólk þyrfti til dæmis að sinna fjölskyldunni sinni. „Þetta eru náttúrulega oft fjölskyldumeðlimir og fólk á foreldra og fólk á börn og auðvitað þarf fólk að hafa samskipti við sitt fólk eftir sem áður. Það er enginn að biðja fólk um að sitja lokað inni og hafa ekki samskipti við nokkurn mann. Fólk þarf að fara út í búð og fólk þarf að gera ýmsa hluti, fólk þarf að sinna börnunum sínum og foreldrum og svo framvegis. Þar eru kontaktarnir þannig að þeir eru ansi margir þrátt fyrir allt en við erum að biðla til fólks að fara bara mjög varlega. Ef allir fara varlega þá lágmörkum við þessa áhættu, við höfum aldrei sagt að það sé hægt að uppræta hana algjörlega.“ Eins og áður segir hefur Þórólfur skilað nýju minnisblaði til ráðherra með tillögum að næstu sóttvarnaaðgerðum. Núverandi aðgerðir gilda til og með morgundeginum og næstu aðgerðir eiga því að taka gildi á miðvikudag. Þórólfur hafði skilað öðru minnisblaði til Svandísar um miðja síðustu viku. Svo fór smitum fjölgandi og ákváðu þau þá að bíða með að ákveða með næstu aðgerðir. Nú er tíu manna samkomubann í gildi um allt land, tveggja metra reglan, íþróttastarf fullorðinna liggur niðri og sundlaugar, skemmtistaðir og barir mega ekki hafa opið. Hvort breyting verði á þessu á eftir að koma í ljós. Hlusta má á viðtalið við Þórólf í spilaranum hér ofar í fréttinni en þar er meðal annars einnig rætt um bóluefni og hvers vegna ekki sé gert ráð fyrir því að börn fædd eftir 2006 fái bóluefni við Covid-19.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Bítið Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Bein útsending: Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar Sjá meira