Og svaraðu nú! Kolbrún Baldursdóttir skrifar 12. desember 2020 13:42 Þann 1. desember var fyrri umræða um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar og fimm ára áætlun. Á þeim fundi voru einnig oddvitaumræður og fékk hver oddviti að halda ræðu í allt að klukkutíma. Ég nýtti hverja sekúndu. Í ræðu minni var ég með nokkrar spurningar til borgarstjóra sem ég á eftir að fá svör við. Mig langar að deila þessum spurningum með ykkur hér ásamt stuttum skýringum með hverjum spurningaflokki. -Búið er að reka nokkra tæknimenn og útvista verkefnum. Verkið þarf að vinna. Fram kom í fréttum að af sviði þjónustu- og nýsköpunar hafa 23 einstaklingar verið ýmist reknir eða flæmst úr starfi, oft fólk með langan starfsaldur. Alls sjö manns var sagt upp á árinu. Þetta hefur gerst þrátt fyrir hina samfélagslegu vídd Græna plansins sem borgarstjóri hefur kynnt? Varla er þetta í anda græna plansins? Hver er hagræðingin af þessu? Fulltrúi Flokks fólksins kallar eftir að sjá þær tölur? Formaður velferðaráðs sagði að standa ætti vörð um störf í COVID-aðstæðunum. Þetta getur varla flokkast undir að standa vörð um störf? -Fulltrúar borgarmeirihlutans segjast vera náttúruunnendur en hafa engu að síður samþykkt að leggja þriðja áfanga Arnarnesvegar þannig að vegurinn mun kljúfa Vatnsendahvarfið eftir endilöngu og takmarka mjög framtíðarmöguleika svæðisins. Sagt er að þetta sé í góðri sátt við Kópavog og Vegagerðina. Það eru aðrar leiðir færar í þessu máli sem Vinir Vatnsendahvarfs hafa kynnt sem ekki munu koma sér eins illa. Hvernig verða mengunarmál leyst þegar stór gatnamót verða alveg upp við leik- og útivistarsvæði sem er að mjög miklu leyti notað af börnum? Framkvæmdin byggir á 18 ára gömlu umhverfismati. Vatnsendahvarfið, sem þessi þriðji áfangi Arnarnesvegar á að liggja um, er mun grónara en fyrir 18 árum þegar umhverfismatið var gert. Virði svæðisins er meira nú. Þar vex fjölbreyttur gróður og ýmsar tegundir farfugla svo sem lóur, hrossagaukar og spóar sem verpa þar á hverju ári. -Nýlega féll úrskurður í Úrskurðarnefnd Velferðarmála í máli fatlaðs ungs manns sem beðið hefur árum saman á biðlista. Í úrskurðinum segir að borgin skuli hraða afgreiðslu málsins og taka ákvörðun um úthlutun viðeigandi húsnæðis svo fljótt sem auðið er. Búið er að þvæla með þetta einstaka mál og mörg önnur fram og aftur frá því að einstaklingurinn var 15 ára. Upplýsingum frá borginni ber ekki alltaf saman og stundum er sagt að umsóknin hafi ekki tekið gildi fyrr en drengurinn varð 18 ára. Fjöldi funda hafa verið haldnir auk símtala og póstsamskipta. En síðan ekki söguna meir. Móðir sem var virk á vinnumarkaði er orðinn öryrki. Einstaklingurinn er sagður efstur á lista en þó ekki víst að hann sé næstur. Hér er um misvísandi skilaboð að ræða og óskað er útskýringa og hvort bæta eigi þessum einstaklingi og fjölskyldu hans upp skaðann vegna biðarinnar og þeirrar óreiðu sem málið hefur allt verið í? -Fólkleitar sér skjóls í óskráðum íbúðum/húsum með tilheyrandi hættu ef það er í neyð. Ef því er fleygt út, hvert fer það þá? Tekur velferðarsvið við þessu fólki opnum örmum og býður því húsnæði? Eða fer þetta fólk á vergang í annað óskráð húsnæði?Hefur börnum sem tilheyra þessum fjölskyldum verið hjálpað? Ætlar borgin að taka frumkvæði í að kalla eftir lagabreytingum og samræðum við ríkið í þessum efnum ? -Hvar er borgin stödd í sérskólaúrræðum? Börn sem þurfa sérnámsúrræði eru oft í ólíðandi aðstæðum því þau komast ekki í úrræði eins og Klettaskóla, sem er yfirfullur. Enn er staðan sú að foreldrar sem hafa óskað eftir vist fyrir barn sitt í sérskóla hafa orðið frá að hverfa ef fyrirsjáanlegt er að barnið nær ekki inntökuviðmiðunum. Á sama tíma er barnið þeirra að berjast í bökkum inn í almennum bekk, líður illa, er jafnvel einangrað, enda ekki á meðal jafningja. Spurt er: Stendur til að setja á laggirnar fleiri sérskólaúrræði eða sérúrræði í skólum?Stendur til að auka fjármagn til skóla eins og kallað var eftir í skýrslu innri endurskoðunar í fyrra? Ekki er að sjá það í þessari fjárhagsáætlun eða fimm ára áætlun. -Hvað varðar biðlista í námskeið þá bíður t.d. 41 barn eftir að komast í námskeiðið Klókir litlir krakkar. Biðlistar eru einnig í sérdeildir, eftir stuðningsfjölskyldu, eftir stuðningi og liðveislu. Eftir talmeinafræðingi bíða yfir 212 börn og milli 700 og 800 bíða eftir þjónustu fagfólks skóla, helst sálfræðinga. Af hverju eru þessi biðlistar eftir þjónustu til í borginni?Ætlar borgarmeirihlutinn að fara að taka á þessu máli og ef svo er þá hvernig? -Nú á að leggja hundaeftirlitið niður halda áfram með sama fyrirkomulag á nýjum vettvangi dýraþjónustu. Þessu er mótmælt enda eiga skráningar sem þessar ekkert skylt við eftirlit. Þykir það eðlilegt að þeir sem borga skráningargjöld af hundum sínum standi undir kostnaði við eftirlit á því hvort aðrir skrái hunda sína?Er eðlilegt og sanngjarnt að hundaeigendur einir, þeir sem skrá hunda sína, haldi uppi kostnaði við gæludýraþjónustu borgarinnar? Höfundur er oddviti Flokks fólksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reykjavík Borgarstjórn Kolbrún Baldursdóttir Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun