Bjartviðri og allt að tólf stiga frost Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 22. desember 2020 06:55 Það er hæð yfir landinu. Henni fylgir bæði bjartviðri og kuldi. Vísir/Vilhelm Það er hæð yfir landinu í dag með tilheyrandi hægviðri í flestum landshlutum nema á Austfjörðum þar sem verður norðvestan strekkingur. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.
Þá má vænta stöku smáélja norðan- og austanlands en annars verður víða léttskýjað. „Þessum hæga vindi og bjartviðri fylgir þó nokkur kuldi og verður frost á öllu landinu, frá 1 stigi syðst niður í 12 stig í innsveitum norðaustanlands. Í kvöld er síðan von á skilum að vestanverðu landinu með vestan kalda, ögn hækkandi hita og éljagang en á morgun er aftur útlit fyrir hægan vind, bjartviðri og nokkurn kulda á landinu,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu: Minnkandi norðlæg átt, fremur hæg um hádegi, en 8-13 m/s austast. Bjart með köflum en lítilsháttar él norðan- og austanlands. Gengur í vestan 5-13 og él vestantil síðdegis og í kvöld, fyrst á Vestfjörðum. Vestlæg átt, 5-10 m/s á morgun, en lengst af 8-13 suðaustantil. Bjartviðri, en stöku él með norður- og suðurströndinni. Frost 0 til 12 stig, kaldast inn til landsins norðaustanlands. Vaxandi sunnanátt vestanlands og þykknar upp annað kvöld. Á miðvikudag (Þorláksmessa): Vestan 3-8 m/s, skýjað með köflum, og stöku él hér og þar. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan. Á fimmtudag (aðfangadagur jóla): Gengur í hvassa sunnanátt með rigningu, einkum sunnan- og vestanlands. Hlýnar talsvert, hiti 1 til 7 stig síðdegis. Á föstudag (jóladagur): Suðvestanátt, allhvöss sunnan- og vestantil. Él, en léttir til austanlands. Hiti um og undir frostmarki. Á laugardag (annar í jólum): Norðlæg eða breytileg átt og víða dálítil él. Frost um allt land. Á sunnudag: Ákveðin norðlæg átt með snjókomu eða él fyrir norðan og austan, en þurrt að kalla syðra. Frost 0 til 5 stig.
Veður Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Fleiri fréttir Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Sjá meira