Enn ekkert sést til Kim Jong-un Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 28. apríl 2020 20:00 Ekkert hefur sést til einræðisherrans í að verða þrjár vikur. EPA/KCNA
Enn hefur ekkert sést til Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, og sögusagnir um að hann sé látinn eða í lífshættu eru enn á kreiki. Ró var yfir norðurkóresku höfuðborginni Pjongjang í dag og lífið gekk sinn vanagang. Ekkert er minnst á ástand einræðisherrans í staðarmiðlum þótt það sé til umfjöllunar nærri alls staðar annars staðar í heiminum. Nærri þrjár vikur eru nú liðnar frá því Kim sást opinberlega. Í millitíðinni hefur hann misst af hátíðarhöldum á degi sólarinnar, en svo kallast afmælisdagur Kim Il-sung, afa Jong-un og fyrsta leiðtoga Alþýðulýðveldisins. Þetta er einn stærsti hátíðisdagur ársins í landinu. Norðurkóreskir miðlar birtu í gær bréf frá Kim til Cyril Ramaphosa, forseta Suður-Afríku, dagsett 27. apríl. Ekki er þó hægt að fullyrða að bréfið sýni fram á að Kim sé við hestaheilsu. Suðurkóreskir embættismenn sögðu í dag, líkt og undanfarna daga, að enn sem komið er væri ekki ástæða til þess að halda að Kim væri í lífshættu eða látinn.
Norður-Kórea Mest lesið Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Innlent Allt að helmingur barna heima vegna veikinda Innlent Fjöldi svæða á landinu sambandslaus með öllu Innlent Gjaldtaka af bílum sé hærri en fjárframlög til vegagerðar Innlent Finnst brotið á réttindum barnsins að orlofið sé skert Innlent Strætó ekið á hjólreiðamann í Laugardal Innlent Staðsetning Íslands „hernaðarlega mjög mikilvæg“ Innlent Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Erlent Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Erlent Hugrakkir drengir opnuðu sig í fréttum, breyttu kerfinu og skáluðu með Ingu Innlent Fleiri fréttir Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Sagður tilbúinn að yfirgefa Venesúela með friðhelgi Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja „Arkitektar gervigreindar“ manneskja ársins hjá Time Fallhlífin flæktist í stélið 900 sviptir ökuleyfinu fyrir að hjóla undir áhrifum áfengis Geta fengið sex milljónir í bætur frá danska ríkinu Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Óvinafögnuður Trumps og Pútíns Missti af afhendingunni en er komin heil á húfi til Osló Þingið ítrekar stuðning Bandaríkjanna við Evrópu Bandaríkjamenn leggja hald á olíuflutningaskip undan ströndum Venesúela Heimila nú birtingu gagna úr rannsókn á Epstein Telur það landráð að skrifa um heilsu sína Sætir líflátshótunum og nær ekki að veita friðarverðlaununum viðtöku Vilja skoða samfélagsmiðla íslenskra ferðamanna Fyrirskipa notkun Times New Roman í stað Calibri Selenskí segist reiðubúinn til að boða til kosninga Samfélagsmiðlabannið hefur tekið gildi í Ástralíu Forsetafrúin kallaði mótmælendur heimskar tíkur Blaðamannafundi aflýst og óvíst hvort Nóbelsverðlaunahafinn mæti Heimilar birtingu gagna úr rannsókn á Maxwell Hylmdu yfir með „Steikarhnífnum“ í Írska lýðveldishernum Sökuð um að drepa barnið sitt með basísku mataræði Hraunar yfir „hnignandi“ heimsálfu Efnahagsráðherra Kúbu í lífstíðarfangelsi fyrir óljósar sakir Sjá meira