Fór hundrað ferðir á Esjuna árið 2020: „Þetta er auðvitað galið“ Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 1. janúar 2021 21:00 Björn hefur látið gera sérstakan fjallgöngujakka fyrir sig sem á stendur „100 Esjur 2020.“ Aðsend/Björn Björn Kristján Arnarson, viðskiptafræðingur og fjallgöngumaður, gekk hundrað sinnum upp á Esjuna á liðnu ári. Björn segir að hann hafi sett sér það áramótaheit á síðasta ári að ganga fjörutíu og fimm sinnum upp á fjallið fyrir 45 ára afmælisdaginn sinn í sumar en svo hafi markmiðið undið upp á sig. „
Í fyrra varð ég 45 ára og fyrsta markmiðið var að ég myndi taka 45. ferðina mína á 45. afmælisdaginn minn í júlí,“ segir Björn. Hann segir að árið hafi byrjað brösuglega. Fyrstu þrír mánuðir ársins 2020 hafi einkennst af vondu veðri og lítið göngufæri hafi verið á þeim tíma. Gönguferðirnar hafi því verið orðnar ansi tíðar þegar leið á vorið áður en kórónuveirufaraldurinn skall á. „Síðan kom Covid, það er kannski eitt af því sem maður getur tekið jákvætt út úr því að þá lokaði líkamsræktin. Þannig að þá hugsaði ég að það væri verið að sýna mér að ég ætti bara að klára þetta,“ segir Björn, en í venjulegu árferði æfir hann Boot Camp, sem brást þegar líkamsræktarstöðvar lokuðu. Aðsend/Björn Fór 45. ferðina á 45 ára afmælisdaginn „Ég fór mjög margar ferðir þarna í apríl, maí og júní. Ég fór nokkrum sinnum tvær ferðir og meira að segja fór ég einu sinni þrjár ferðir í einu. Síðan náði ég þessari 45. Esju á afmælisdaginn minn sem var mjög gaman. Þá var markmiðinu náð,“ segir Björn. Markmiðið hafi þó, að hans sögn, breyst þegar haustaði og líkamsræktarstöðvum var skellt aftur í lás. „Þá beit ég það í mig að ég þyrfti að uppfæra þetta markmið. Ég fer bara í hundrað,“ segir Björn. Björn fór þó ekki í allar ferðirnar einn. Reglulega tók hann hundinn sinn með sér og svo slóst fjöldi fólks í för með honum yfir árið. Hann segir ferðirnar allar hafa verið ólíkar. Hann hafi gengið í mismunandi veðri og aðstæðum og á ýmsum tíma dags. Hann gekk meðal annars með hópi sem kallar sig 545, sem leggur af stað upp á Esjuna klukkan korter í sex á morgnanna. „Það eru nokkrir rugludallar sem að fara mjög snemma og við erum þá mætt í Esjuna klukkan 5:45. Einu sinni þurfti einhver að vera aðeins fyrr á ferðinni og við vorum held ég komin í Esjuna korter yfir fimm. Það var bara enn um nótt,“ segir Björn. Björn fór á Esjuna á ýmsum tímum dags og náði því stórkostlegum myndum, t.d. af stjörnubjörtum himni.Aðsend/Björn „Svo hef ég farið um morguninn, í hádeginu og á öllum tíma dags. Ég hef séð stjörnuhrap, sólina koma upp, sólina fara niður. Það er alveg magnað að hafa þetta fjall í borgarjaðrinum. Þetta er þrælerfitt fjall að fara og er frábær líkamsrækt.“ Markmiðið virtist galið í fyrstu Björn segir að þegar snjó var farið að leysa og fjallið var orðið vel fært hafi hann farið að huga að tímanum sem það tók hann að fara upp og niður. Besti tíminn sem hann náði hafi verið á 45 ára afmælisdaginn, en þá stefndi hann á að komast upp og niður Esjuna á 45 mínútum. „Ég ætlaði að reyna að ná, á 45. deginum mínum, afmælisdeginum, 45 mínútum upp og niður. En ég náði 49 mínútum. Það er besti tíminn minn. Á þessu ári verð ég 46 þannig að kannski stefni ég á 46 mínútur,“ segir Björn. Björn segist ekki alltaf hafa verið bjartsýnn á að hann næði að ganga hundrað sinnum á fjallið á árinu, því „þetta er auðvitað galið.“ Þegar líða fór á veturinn fór markmiðið þó að virðast ekki svo fjarlægt og „piece of cake.“ Hann segist hafa kryddað upp á ferðirnar með ýmsum hætti á árinu, til dæmis með því að fara oftar en einu sinni upp á fjallið á dag, nota þyngingarvesti og háfjallagrímu. Ein ferð sé þó eftirminnilegust, en þá fór hann ásamt systurdóttur sinni upp fjallið, og þau tóku tíu armbeygjur eftir hverja hundrað metra sem þau gengu. Björn tók iðulega hundinn sinn með í göngurnar.Aðsend/Björn „Þegar maður segir það hljómar það bara krúttlega. En á endanum eru þetta sex þúsund metrar. Þannig að við endum á því að taka sex hundruð armbeygjur þessa ferðina,“ segir Björn. Ferðirnar samsvara átta ferðum á Everest „Eins einhæft og þetta hljómar, að fara upp og niður Esjuna og klukka Steininn, þá er rosalegur fjölbreytileiki í þessu. Kannski að labba einhvern annan stíg, allt í einu þegar snjórinn fór sá maður nýja læki og fossa. Stundum var ég einn, stundum var ég með hundinn, stundum tveir og fleiri. Fjölbreytileikinn í þessu hefur verið ótrúlega skemmtilegur,“ segir Björn. Þetta er ekki fyrsta sinn sem Björn setur sér áramótaheit sem reyna á þolið. Hann segist reyna að setja sér áramótaheit á hverju ári fyrir heilsuna. Hann hafi hlaupið maraþon, farið í Spartan-keppnir í Boot Camp-inu og fleira. „En þetta ár lá ekkert fyrir og ég þurfti að hafa eitthvað. Þannig að ég ákvað að ganga 45 sinnum á Esjuna. Þannig byrjaði þetta og svo breyttist þetta með haustinu,“ segir Björn. Björn er hér með svokallaða háfjallagrímu, sem er til þess fallin að minnka súrefnisflæði og þjálfa þannig lungun til göngu í háum hæðum.Aðsend/Björn Hann segist ekki ætla að halda markmiðinu áfram fyrir þetta árið. Hann muni þó ekki hætta að fara á Esjuna, þrátt fyrir að hafa gengið hana meira en hundrað sinnum. „En nú er ég kominn með smá fjalla- og utanvegabakteríu þannig að kannski fer maður að líta betur í kring um sig í nágrenninu. Kíkja betur á allt sem er í Hafnarfirði, Mosfellsbæ og Suðurnesjunum. Maður hefur verið svolítið einhæfur að fara bara á Esjuna,“ segir Björn. Björn segir að hann hafi notað forritið Strava til að fylgjast með og kortleggja ferðirnar. Í ljós hafi komið að ferðirnar samsvari um átta ferðum upp á Everest, hæsta fjall heims. „Ég fór yfir 70 þúsund hæðametra, uppsöfnuð hækkun yfir árið samsvarar átta Everest-fjöllum. Og þetta eru tæplega 700 kílómetrar af Esjugöngu yfir árið,“ segir Björn.
Esjan Fjallamennska Tengdar fréttir Reyndur Esjuhlaupari telur að CrossFit-keppendur sprengi sig gjörsamlega upp að Steini Venjuleg ganga upp að Steini tekur rúman klukkutíma en búist við að CrossFit-keppendur verði í um 30 mínútur þangað upp. 1. maí 2019 22:50 Esjan og „Steinninn“ bjóða CrossFit fólkið velkomið til Íslands Keppendur á alþjóðlega CrossFit mótinu sem fram fer á Íslandi um komandi helgi er ráðlagt að koma vel útbúin til Íslands. Ein af ástæðunum er fyrsta grein mótsins á föstudaginn kemur. 29. apríl 2019 09:00 Mest lesið Matti Matt nú meistari Lífið Sætustu systur landsins skáluðu fyrir Birni Lífið Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Lífið Jóhanna Guðrún gæsuð Lífið Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina Lífið samstarf Í Love Island eftir lífshættulegt slys Lífið Mikið um dýrðir á þjóðardegi Íslands í Japan Lífið Sydney Sweeney selur sápu úr skítugu baðvatni sínu Lífið Brad Pitt tjáir sig í fyrsta skipti um skilnaðinn Lífið Hamingjusöm pör noti mikið samanburð við aðra Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Matti Matt nú meistari Mikið um dýrðir á þjóðardegi Íslands í Japan Sætustu systur landsins skáluðu fyrir Birni Hamingjusöm pör noti mikið samanburð við aðra Í Love Island eftir lífshættulegt slys Sydney Sweeney selur sápu úr skítugu baðvatni sínu Jóhanna Guðrún gæsuð Brad Pitt tjáir sig í fyrsta skipti um skilnaðinn „Þetta tekur svo svakalega á sálartetrið“ Sjarmerandi miðbæjaríbúð listapars Heillaði að læra hefðirnar í Húsó Steldu senunni í veislu sumarsins Hefur lést um níu kíló eftir hjartaáfallið: „Maður vaknar svolítið við þetta“ Dreymir stanslaust kynlíf með öðru fólki en makanum Skvísurnar tóku yfir klúbbinn Tónlistarbransadrottning selur miðbæjarslotið Handlagin hjón selja tvær eignir í sögulegu farandshúsi Kjalar ástfanginn í tvö ár Diddú tíu þúsundasti gestur fótboltabullnanna Sú elsta í sögu Ungfrú Ísland glímdi við átröskun og varð minnst 39 kíló Alda Karen keppir í hermiakstri Var ekki að lifa lífinu heldur að þrauka það Eilish sópaði að sér verðlaunum á AMA-hátíðinni Kolféll fyrir New York en sér íslenska náttúru í hillingum Brauðtertu- og ostakökukeppni á Selfossi Sara Björk og Árni kaupa í Urriðaholti Senjórítur og Pálmi Gunnars stálu senunni á Rottweiler Eyjaherrar heiðruðu sjötugan Ásgeir í stjörnufans „Þessi þriggja daga hátíð er algjört konfekt” Sjá meira
Reyndur Esjuhlaupari telur að CrossFit-keppendur sprengi sig gjörsamlega upp að Steini Venjuleg ganga upp að Steini tekur rúman klukkutíma en búist við að CrossFit-keppendur verði í um 30 mínútur þangað upp. 1. maí 2019 22:50
Esjan og „Steinninn“ bjóða CrossFit fólkið velkomið til Íslands Keppendur á alþjóðlega CrossFit mótinu sem fram fer á Íslandi um komandi helgi er ráðlagt að koma vel útbúin til Íslands. Ein af ástæðunum er fyrsta grein mótsins á föstudaginn kemur. 29. apríl 2019 09:00