Bríet tónlistarmaður ársins hjá RVK Grapevine Stefán Árni Pálsson skrifar 15. janúar 2021 16:01 JFDR og Bríet fengu verðlaun. @Art Bicnick Tónlistarkonan Bríet er tónlistarmaður ársins hjá menningartímaritinu Reykjavík Grapevine en þetta kemur fram í tilkynningu frá Grapvine.
Aðrir sem komu til greina voru rokkhljómsveitin Skoffín og Víkingur Heiðar Ólafsson. Það var svo JFDR sem fékk verðlaun fyrir bestu plötu ársins, New Dreams en tónlistarkonan Jófríður Ákadóttir hefur fyrir löngu fest sig í sessi í íslensku tónlistarlífi sem einn af fremstu tónlistarmönnum landsins. Frosti Jón Runólfsson fékk verðlaun fyrir besta myndband ársins við lag Jónsa, Sumarið Sem Aldrei Kom. Myndbandið vakti gríðarlega athygli í íslensku þjóðfélagi þar sem Frosti dregur upp ljóðræna mynd af íslenskum hversdagsleika hjá ólíkum þjóðfélagshópum. Þá fékk hljómsveitin Holdgervlar viðurkenningu í flokknum, listafólk sem þið ættuð að fylgjast með (Artist to watch). Hin óhefðbundna þeramín-tólistarkona, Hekla, fékk verðlaun í flokknum „Þú ættir að hafa heyrt af þessu“ (You should have heard this) en hún deilir verðlaununum með hljómsveitinni RYBA sem hefur vakið mikla athygli án þess að ná inni í meginstraum tónlistarlífs Íslendinga. Holdgervlar fengu verðlaun í flokknum listafólk sem þið ættuð að fylgjast með.@Art Bicnick Að lokum fengu myndbandsgerðarfólkið Rough Cult og poppstjarnan Auður sérstök hvatningarverðlaun í flokknum Shout out. Rough Cult hefur verið iðið við að framleiða tónlistarmyndbönd. Má þar helst nefna myndbandið Píla með joey Christ en þau hafa einnig unnið með Vök, meðal annars við lagið Erase You. Auður fékk hvatningarverðlaun fyrir að vera sérlega iðinn við að vinna með ólíku og óþekktu listafólki í faraldrinum, og þannig auðgað tónlistarlíf Íslendinga á tímum heimsfaraldurs þannig um munar. Þá opnaði hann hljóðver ásamt tónlistarmanninum Krassasig til þess að styðja við nýja tónlistarmenn. Þá var dómnefnd nokkur vandi á höndum vegna þess að fáir tónleikar áttu sér stað þetta árið. Var því brugðið á það ráð að líta til streymis á netinu, þar sem tónlistarfólk kom fram. Að mati dómnefndar stóðu Airvawes upp úr, sem voru sýndir á RÚV auk Post-Session sem Post-dreifing stóð fyrir þar sem grasrótin var allsráðandi. Í dómnefnd Reykjavík Grapevine þetta árið voru þau Hannah Jane Cohen, menningarritstjóri Reykjavík Grapevine, og var hún formaður. Aðrir voru Alexander Jean Edvard Le Sage De Fontenay, blaðamaður, plötusnúður og nemi, Geoffrey Þór Huntingdon - Williams, rekstrarstjóri Priksins og sticky plötuútgáfunnar, Sigtryggur Baldursson, tónlistarmaður og framkvæmdastjóri Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, og að lokum, Maria-Carmela Raso, tónlistarkona og sýningastjóri. „Það var ákveðin áskorun að samræma störf dómnefndar við stöðu mála í heimsfaraldrinum, en okkur tókst það með mikilli vinnu og góðu skipulagi,“ segir Hannah Jane en Reykjavík Grapevine mun ekki halda sérstaka verðlaunaafhendingu í ár líkt og fyrri ár þegar blaðið hefur fagnað tónlistarverðlaununum. Hannah segir að það sem standi upp úr fyrir síðasta ár, sem var mjög ólíkt öllum öðrum árum þegar kom að tónlistarflutningi, var hversu góð tónlistin var, auk þess sem íslenskt tónlistarfólk vakti gríðarlega athygli erlends. „Gæði íslenskra tónlistar á síðsta ári voru mjög góð, og í raun ótrúlegur árangur að halda uppi svo góðu listastigi á þessum erfiðu tímum. Þetta varð auðvitað til þess að dómnefndin átti ærið verkefni fyrir höndum, en við erum mjög stolt af niðurstöðunum,“ segir hún að lokum. Hægt er að lesa viðtöl og umfjöllun um sigurvegarana í nýjasta tölublaði Reykjavík Grapevine sem er hægt að nálgast í verslunum, bensínstöðum og veitingastöðum víða um höfuðborgarsvæðið eða á stafrænu formi á Grapevine.is.
Tónlist Mest lesið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira