Innlent

Helga Guðrún býður sig fram gegn Ragnari Þór

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Helga Guðrún fer gegn Ragnari Þór.
Helga Guðrún fer gegn Ragnari Þór. Samsett

Helga Guðrún Jónasdóttir, stjórnmála- og fjölmiðlafræðingur, býður sig fram til formanns stéttarfélagsins VR gegn sitjandi formanni, Ragnari Þór Ingólfssyni. Þetta tilkynnti Helga Guðrún nú síðdegis. 

Helga Guðrún er stjórnmála- og fjölmiðlafræðingur að mennt og á að baki 30 ára starfsferil sem ráðgjafi, upplýsingafulltrúi og samskiptastjóri í markaðs- og kynningarmálum. Þá var hún varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í kringum aldamótin. 

Helga kveðst hafa fengið áhuga á kjarabaráttu þegar hún starfaði sem ráðgjafi vegna innleiðingar á markaðslaunakerfi félagsins upp úr síðustu aldamótum. Þá hafi hún mikla reynslu af félagsmálum, m.a. sem formaður Kvenréttindafélags Íslands.

Helga Guðrún segist leggja áherslu á að helsti styrkur VR felist í stærð félagsins sem fjölmennasta stéttarfélag landsins. Síðustu misseri hafi félagsmönnum þó farið hlutfallslega fækkandi. Snúa verði þessari þróun við, með því að þjóna hagsmunum allra félagsmanna jafnt. 

„Nálgast verði umræðuna um kjör þeirra lægst launuðu á nýjum grunni og huga að því millitekjufólki sem glímir við versnandi kjör. Þá verði að styrkja undirstöður markaðslaunakerfisins, sem hefur margsannað sig sem öflugusta kjarabaráttutæki mikils meirihluta félagsmanna,“ segir Helga Guðrún í tilkynningu. 

Ætlar að beita sér gegn kynbundnum launamun

Helga Guðrún vill að aðilar vinnumarkaðarins taki höndum saman og tileinki sér þau vinnubrögð í kjarasamningum sem tíðkast á hinum Norðurlöndunum. Þá vill hún að formaður VR „starfi í þágu félagsmanna VR.“ Þá hyggist hún beita sér af afli gegn kynbundnum launamun innan VR. 

Helga Guðrún vill jafnframt að Lífeyrissjóður verzlunarmanna fái að starfa óáreittur með hag iðgjaldagreiðenda að leiðarljósi. 

„Lífeyrissjóðurinn er félagsmönnum VR afar mikilvægur bakhjarl og formaður VR má ekki nota vald sitt til að veikja undirstöður sjóðsins,“ segir Helga Guðrún.

Fram kemur í tilkynningu á vef VR að þau Helga Guðrún og Ragnar séu ein í framboði til formanns. Kjörstjórn VR mun auglýsa tilhögun kosninga nánar þegar nær dregur. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×