Dæmdur til dauða fyrir morð á frönskum fjallgöngumanni Atli Ísleifsson skrifar 19. febrúar 2021 08:32 Lík Gourdel fannst ekki fyrr en í janúar 2015, eftir þátttöku þúsunda alsírskra hermanna í leitinni. EPA Dómstóll í Alsír hefur dæmt mann til dauða vegna mannráns og morðs á frönskum fjallgöngumanni í landinu 2014.
Hervé Gourdel, 55 ára Frakka, var rænt þar sem hann var á ferð um Djurdjura-þjóðgarðinum, austur af Algeirsborg í september 2014. Síðar birtist myndband á netinu þar sem sjá mátti þegar Gourdel var afhöfðaður. Hryðjuverkahópurinn Jund al-Khilafa, sem hefur haft tengsl við ISIS, lýsti yfir ábyrgð á ódæðinu. Í frétt BBC segir að einn grunaðra, Abdelmalek Hamzaoui, hafi mætt í dómsal í gær, en réttað var yfir öðrum í þeirra fjarveru. Hamzaoui hafnaði því að hafa átt þátt í morðinu og sagðist hafa verið bendlaður við málið til að „loka málinu og friðþægja Frakka“. Fjöldi samferðamanna Gourdel, sem einnig var haldið föngnum, sögðu Hamzaoui þó hafa verið einn úr hópi mannræningjanna. Þó að Hamzaoui hafi verið dæmdur til dauða þá hefur dauðarefsingum ekki verið framfylgt í Alsír síðan 1993. Mannræningjar Gourdel birtu myndbandið eftir að frönsk stjórnvöld neituðu að verða við kröfum þeirra um að árásum gegn liðsmönnum ISIS í Írak og Sýrlandi yrði hætt. Lík Gourdel fannst ekki fyrr en í janúar 2015, eftir þátttöku þúsunda alsírskra hermanna í leitinni.
Alsír Frakkland Dauðarefsingar Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira