Einn greindist með kórónuveiruna innanlands Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 1. mars 2021 11:00 Frá bólusetningu framlínustarfsfólks í síðasta mánuði. Vísir/Vilhelm Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Viðkomandi var ekki í sóttkví við greiningu. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á covid.is.
Um er að ræða Íslending sem kom til landsins á dögunum, fór í tvöfalda skimun á landamærunum með fimm daga sóttkví á milli líkt og reglur gera ráð fyrir og greindist neikvæður í báðum sýnatökum. Þegar hann ætlaði síðan að fara úr landi og fór í skimun til að fá PCR-vottorð greindist hann með veiruna. Nú er beðið niðurstöðu mótefnamælingar varðandi það hvort um er að ræða nýja eða gamla sýkingu. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir í samtali við fréttastofu að það verði fróðlegt að sjá hvort að viðkomandi sé með mótefni og hafi þá sloppið í gegnum landamærin með neikvætt sýni. Ef hann er hins vegar ekki með mótefni þá sé um að ræða nýtt innanlandssmit. Ef svo sé þurfi að fara vel ofan í það hvar viðkomandi hefur verið undanfarnar tvær vikur og hvar hann hafi þá mögulega smitast. Einn greindist með virkt smit á landamærunum við fyrri sýnatöku í gær og einn greindist með mótefni. 244 einkennasýni voru tekin innanlands í gær og 600 sýni á landamærunum. Nýgengi innanlandssmita er nú 0,8 og nýgengi landamærasmita 2,7. Fjórir eru í sóttkví og þrettán manns í einangrun. 894 eru í skimunarsóttkví, sjö eru á sjúkrahúsi og 12.600 manns eru fullbólusettir. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Sjá meira