Fann ekki bara pabba sinn heldur sálufélagann Stefán Árni Pálsson skrifar 1. mars 2021 13:30 Linda Rut fann föður sinn í júní árið 2017 og í leiðinni sálufélagann. @stöð2 Í október árið 2017 hófst önnur þáttaröðin af Leitinni að upprunanum og var þá fjallað um ótrúlega sögu Lindu Rutar Sigríðardóttur.
Hún komst að því 17 ára gömul að maðurinn sem hún taldi vera föður sinn væri það ekki, heldur væri hún í raun dóttir Breta sem hvarf á dularfullan hátt frá Súðavík fyrir nærri 30 árum. Linda hafði eytt tíu árum í leit að föður sínum sem tókst loks með aðstoðar Sigrúnar Óskar og fann hún föður sinn, Richard Guilford í strandbænum Weymouth. Í síðasta þætti af Leitinni að upprunanum rifjaði Linda upp allt ferlið og fór yfir samband sitt við föður sinn síðustu þrjú ár. Höskuldarviðvörun: Ef þú ert ekki búinn að horfa á þáttinn ættir þú að hætta að lesa þessa grein og loka henni. . . . . . . . Það er búið að vara þig við. . . . . . . . Linda segir að í kjölfarið þáttarins hafi samband þeirra orðið algjörlega einstak. Þau hafi talað saman á hverjum einasta degi. Richard kom sjálfur til Íslands og loksins aftur til Súðarvíkur. Hann hafi kynnst allri fjölskyldunni og einnig hafi Linda farið út til Bretlands til að heimsækja föður sinn. Linda með báðum foreldrum sínum hér á landi. Linda segir að hún hafi einfaldlega fundið sinn sálufélaga. Richard hafi kynnst börnunum hennar og hafi í raun orðið hinn fullkomni afi. Richard Guilford varð sextugur í maí á síðasta ári. Vegna faraldursins gat Linda fjölskyldan ekki verið með honum á afmælisdaginn en þau hittust öll og sungu fyrir hann afmælissönginn og áttu yndislega stund. Dagurinn þegar Linda hitti föður sinn í fyrsta sinn árið 2017. Aðeins nokkrum dögum seinna fær Richard heilablóðfall og fannst meðvitundarlaus inni í íbúð sinni í Weymouth. Hann var fluttur með hraði á sjúkrahús. „Svo fæ ég símtal frá Jake [syni Richard] á laugardeginum, nokkrum dögum seinna og hann tilkynnir mér að hann sé látinn. Þá hafði hann sem sagt fengið hjartaáfall og það var ekki hægt að endurlífga hann. Það var reynt nokkrum sinnum en þetta gerðist bara svo skyndilega þannig að hann bara dó.“ Síðasta samtalið. Linda segir að það hafi aldrei hvarflað að henni að tími þeirra saman yrði eins stuttur og raun bara vitni. „Við fundum hann 14. júní 2017 og hann lést 19. maí 2020. Þetta eru rétt tæplega þrjú ár en svo mikið mikið meira en þrjú ár. Þessi tenging sem við myndum á þremur árum er tenging sem ég hef ekki myndað við neinn á allri ævinni. Það versta við þetta er að það tók ellefu ár að finna hann. Svo finna hann og verða svona heill og einn daginn þá missir maður þetta púsl sem maður leitaði svo lengi að. Í því starfi sem ég er í hef ég horft á mjög marga missa og hef misst sjálf. Eitt skipti sá ég konu sem hafði misst mömmu sína. Þetta voru svo hráar tilfinningar og hún var svo brotin og ég reyndi að vera til staðar fyrir hana og hugsaði bara vá, ég ætla vona að ég eigi aldrei eftir að lenda í þessu. Svo deyr pabbi og ég missi sálufélagann minn, ég missi þennan eina einstakling í heiminum sem var hinn helmingurinn minn,“ segir Linda en hér að neðan má sjá brot úr þætti gærkvöldsins. Klippa: Fann ekki bara pabba sinn heldur sálufélagann
Leitin að upprunanum Ísafjarðarbær Mest lesið „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Tónlist Rétturinn sem fær konurnar niður á hnén Lífið Slær á létta strengi í þinginu og afhenti ráðherra „Gyllta tappann“ Lífið Vala Grand og Brynjólfur flytja á Skagann Lífið Fyrst skíði og nú golf Lífið Brady og Bloom sagðir sólgnir í Sweeney Lífið Árin hjá Spotify ævintýri líkust Lífið Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Tónlist Stjörnulífið: Suðræn sæla og seiðandi kroppar Lífið Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí Lífið Fleiri fréttir Slær á létta strengi í þinginu og afhenti ráðherra „Gyllta tappann“ Of Monsters and Men gefa út nýtt lag Brady og Bloom sagðir sólgnir í Sweeney Fyrst skíði og nú golf Rétturinn sem fær konurnar niður á hnén „Takk Hreyfill frá Vorsabæ“ Vala Grand og Brynjólfur flytja á Skagann Árin hjá Spotify ævintýri líkust Einar fékk meira hár en Baldur „Öruggt athvarf fyrir hinsegin samfélagið“ Stjörnulífið: Suðræn sæla og seiðandi kroppar Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí „Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ „Það eru smá blendnar tilfinningar að vera farin“ Travolta klæddi sig óvænt upp sem Danny Zuko Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Skordýrabrúðkaup í Laugardalslaug Krakkatían: Leikhópurinn Lotta, fótboltamót og sumarsólstöður Sonur Rögnu og Árna fæddur Einn með fyrsta vinning og vann tæpar 54 milljónir Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Sjá meira