Leikjavísir

Stafrænir bíl­stjórar aka bráðum Hring­veginn

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Litið upp Kaupvangsstræti á stafrænt endurgerðri Akureyri.
Litið upp Kaupvangsstræti á stafrænt endurgerðri Akureyri. SCS Software

Ísland verður opnað fyrir vörubílstjórum Euro Truck Simulator 2 þann 10. nóvember. Framleiðandinn SCS Software staðfesti útgáfudaginn í dag og birti um leið nýja stiklu úr væntanlegri viðbót leiksins.

Viðbótin hefur verið í vinnslu um nokkurt skeið en til þessa hafði enginn útgáfudagur verið gefinn upp.

Hugsanlega er þessi af Reykjanesi.SCS Software

Í leiknum verður hægt að aka Hringveginn og heimsækja alls fjórtán bæi og byggðarlög. Reykjavík og Akureyri eru þar á meðal en SCS hefur einnig sýnt ítarlega frá meðal annars Keflavík og Seyðisfirði.

Stikla úr leiknum var birt í dag.

Framleiðendur hafa lagt mikla áherslu á íslenskt landslag. Jökulsárlón, Goðafoss, Gullfoss, Seljalandsfoss, Víkurfjara, Geysir og Þingvellir eru meðal þeirra staða sem birtast stafrænum bílstjórum. Þá verða einbreiðar brýr á vegum landsins sérstaklega endurgerðar og þurfa ökumenn að víkja fyrir umferð úr gagnstæðri átt sem bílstjórar flutningabíla eru kannski ekki eins vanir annars staðar í álfunni.

Norðurljós verða einnig sýnileg þegar aðstæður leyfa og sólargangur á að fylgja raunverulegum árstíðabundnum birtutíma á Íslandi.

Sérsmíðaðar íslenskar starfsstöðvar

Ísland verður ekki aðeins bakgrunnur fyrir aksturinn heldur hafa hönnuðir leiksins búið til sérstakar íslenskar atvinnugreinar og áfangastaði fyrir flutningaverkefni.

Þar verða meðal annars bæir, námur og kísilverksmiðja í Húsavík. SCS hefur áður greint frá því að verksmiðjan sé unnin sem nákvæm eftirlíking af raunverulegri verksmiðju og að leikmenn geti ekið víða um athafnasvæðið til að sækja og afhenda mismunandi farm.

Djúpsjór vinnsla er víst stórtækur atvinnurekandi fyrir austan á þessu Hliðar-Íslandi.SCS Software

Við Keflavíkurflugvöll verður einnig vöruflutningasvæði þar sem hægt verður að sækja og skila farmi. Leikurinn tengir það svæði síðan við Reykjavík eftir Reykjanesbrautinni.

Fóru sjálfir um landið til að ná réttum svip

Starfsmenn SCS Software komu til Íslands við gerð viðbótarinnar til að safna myndum og öðrum gögnum fyrir leikjaheiminn.

Kortahönnuðir fyrirtækisins fóru meðal annars um landið í íslenskum Volvo-vörubíl til að fá tilfinningu fyrir vegunum frá sjónarhóli atvinnubílstjóra. Fyrirtækið segir myndefnið hafa verið notað til að endurgera landslag og kennileiti eins nákvæmlega og mögulegt væri innan mælikvarða leiksins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.