Fangelsi undir Vatnajökli Agnar Már Másson skrifar 7. október 2026 21:31 Það kennir ýmissa grasa í skálduðu fangelsi á Grímsvötnum undir Vatnajökli sem er nýr leikvangur í tölvuspilinu Overwatch. Samsett Mynd Grímsvötn nefnist nýr leikvangur í hinum heimsfræga tölvuleik Overwatch. Spilarar geta þar etið kappi í skálduðu hámarksöryggisfangelsi í samnefndri eldstöð í Vatnajökulsþjóðgarði.
Nýi leikvangurinn var gefinn út í gær, þriðjudag, samhliða uppfærslu á leiknum þar sem nýtt efni var kynnt til leiks. Overwatch er fjölspilunarleikur þar sem tvö fimm til sex manna lið, skipuð fjölbreyttum hópi þungvopnaðra karaktera, etja kappi. Alls er talið að leikurinn hafi haft um 370 - 570 þúsund virka spilara undanfarinn mánuð, samkvæmt vefnum activeplayer.io. Í heimi leiksins eru karakterarnir af mismunandi þjóðerni og sömuleiðis eiga bardagar sér stað um víða veröld, hvort sem um ræðir Brasilíu, Kína eða jafnvel Samóaeyjar. Lundar virðast hafa komið sér fyrir á mosagrónu stuðlabergi fyrir utan fangelsið.Skjáskot Og nú fyrst er hægt að keppa á Íslandi, nánar tiltekið á „Eftirlitsstöðinni að Grímsvötnum“ sem á að vera eins konar hámarksöryggisfangelsi þar sem allra hættulegustu glæpamenn í heimi leiksins eru geymdir, þar á meðal nýjasti karakterinn: hinn simbabveski Doctrine sem er nýsloppinn út. Við hliðina á risaróbot má sjá eins konar dagbókarfærslu þar sem höfundur lýsir áhyggjum af fyrirbærinu.Skjáskot Hönnuðirnir virðast hafa lagt sig nokkuð fram við að gera spilendum kýrskýrt að þeir séu staddir á Íslandi enda má þar finna lunda sem hafa lagt undir sig yfirgefna kaffistofu auk þess sem sjá má stuðlaberg, virkt eldgos og rennandi hraun í fjarska. Sömuleiðis eru hlutar fangelsisins merktir á íslensku, svo sem skrifstofur, álmur og fleiri svæði, þó margt sé vissulega á ensku. Í leiknum virðist sem eldgos standi yfir og í fjarska má sjá þrjá gíga sem spúa kviku. Grímsvötn eru virkasta eldstöð Íslands en síðast gaus þar árið 2011. Blaðamaður fór í skoðanaleiðangur um nýja leikvanginn.
Leikjavísir Eldgos og jarðhræringar Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hvað veistu um… pitsur? Lífið Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Lífið Fleiri fréttir Stafrænir bílstjórar aka bráðum Hringveginn Fangelsi undir Vatnajökli Blood of Dawnwalker: Tíminn er þinn helsti óvinur Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Sjá meira