„Israel sagði mér að fara“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. mars 2021 13:00 Ingvi Þór Guðmundsson í leik með Grindavík á síðasta tímabili. vísir/bára Ingvi Þór Guðmundsson segir að það hafi ekki verið sín ákvörðun að yfirgefa Hauka heldur Israels Martin, þjálfara liðsins. Ingvi gekk nokkuð óvænt í raðir Þórs á Akureyri í síðustu viku og lék sinn fyrsta leik fyrir liðið þegar það tapaði fyrir Keflavík í Domino's deildinni í gær, 102-69. Í viðtali við íþróttadeild eftir leikinn í Keflavík í gær sagði Ingvi að Israel hafi tjáð honum að krafta hans væri ekki lengur óskað hjá liðinu. „Þetta kom mér á óvart eins og flestum held ég. Ég var fínn í Hattarleiknum og á sunnudaginn boðar Israel mig á fund og segir mér að finna annað lið,“ sagði Ingvi. „Hann var að fá annan skotbakvörð og sagði mér að fara og ég fór bara til Akureyrar. Það var ekkert flóknara en það.“ Klippa: Ingvi Þór um brotthvarfið frá Haukum Ingvi lék í rúma 21 mínútu í leiknum í gær, skoraði ellefu stig, tók sex fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Hann hitti úr fjórum af átta skotum sínum utan af velli. Þórsarar eru í ellefta og næstneðsta sæti deildarinnar með sex stig. Í níu leikjum með Haukum í vetur var Ingvi með 10,1 stig, 3,6 fráköst og 2,9 stoðsendingar að meðaltali. Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Dominos-deild karla Haukar Þór Akureyri Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira
Ingvi gekk nokkuð óvænt í raðir Þórs á Akureyri í síðustu viku og lék sinn fyrsta leik fyrir liðið þegar það tapaði fyrir Keflavík í Domino's deildinni í gær, 102-69. Í viðtali við íþróttadeild eftir leikinn í Keflavík í gær sagði Ingvi að Israel hafi tjáð honum að krafta hans væri ekki lengur óskað hjá liðinu. „Þetta kom mér á óvart eins og flestum held ég. Ég var fínn í Hattarleiknum og á sunnudaginn boðar Israel mig á fund og segir mér að finna annað lið,“ sagði Ingvi. „Hann var að fá annan skotbakvörð og sagði mér að fara og ég fór bara til Akureyrar. Það var ekkert flóknara en það.“ Klippa: Ingvi Þór um brotthvarfið frá Haukum Ingvi lék í rúma 21 mínútu í leiknum í gær, skoraði ellefu stig, tók sex fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Hann hitti úr fjórum af átta skotum sínum utan af velli. Þórsarar eru í ellefta og næstneðsta sæti deildarinnar með sex stig. Í níu leikjum með Haukum í vetur var Ingvi með 10,1 stig, 3,6 fráköst og 2,9 stoðsendingar að meðaltali. Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Dominos-deild karla Haukar Þór Akureyri Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira