Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Stefán Árni Pálsson skrifar 19. október 2026 11:02 Benedikt fór sjálfur í High School sem ungur maður. Um næstu helgi fer fram svokallað showcase fyrir börn á aldrinum 13–18 ára í Kaldalónshöllinni á Álftanesi. Viðburðurinn er á vegum Soccer & Education sem hefur verið að færa sig í auknum mæli yfir í körfuboltann.
Fyrirtækið hefur undanfarin tíu ár aðstoðað ungmenni við að komast inn á háskólastyrki í knattspyrnu í Bandaríkjunum en undanfarin þrjú ár hefur verið hægt að komast inn í gagnfræðaskóla eða High School með aðstoð Soccer & Education. Brynjar Benediktsson er einn af forsvarsmönnum fyrirtækisins en Kjartan Atli Kjartansson mun stýra körfuboltaæfingunum um næstu helgi en þjálfarar frá Bandaríkjunum mæta og fylgjast með æfingunum. Rætt var við þá Brynjar og Kjartan í síðasta þætti af Körfuboltakvöldi. Um tólf krakkar úti í dag „Við erum að taka á móti bara bandarískum þjálfurum úr high school sem eru að fara að skoða íslenska leikmenn. Karfan hefur verið á mikilli uppleið hérna heima. Við héldum svona í fyrsta skipti í fyrra og það gekk mjög vel. Núna eru nokkrir krakkar úti í high school þannig að við erum bara hrikalega spennt fyrir þessu,“ segir Brynjar sem telur að um tólf íslenskir körfuboltakrakkar séu nú við nám í high school í Bandaríkjunum. Hann segir að gæðamunurinn á krökkum sem fara út í skóla sé mikill og ekki sé þörf á því að vera afburðagóður eða góð. Körfuboltaumhverfið í Bandaríkjunum er ótrúlegt. „Þetta eru rosa mörg level. Þú getur verið bara bestur á Íslandi eða bara leikmaður sem er bara fínn og vill prófa ævintýrið. Þannig að það er það skemmtilega við þetta,“ segir Brynjar. Kjartan Atli þekkir sjálfur þetta umhverfi vel en dóttir hans er í dag í high school í Flórída þar sem hún fær að stunda knattspyrnu. „Þetta stækkar aðallega sjóndeildarhringinn. Það er það fyrsta sem kemur upp í hugann. Þegar þú ert þarna úti í Bandaríkjunum þá náttúrulega ertu svona partur af einhverju miklu stærra samfélagi en þú ert vanur hér. Svo eru krakkar að koma alls staðar að úr heiminum líka þarna inn þannig að það verður mjög gaman að kynnast annars konar menningu og svo bara prófa sig áfram í nýju skólakerfi, læra nýtt tungumál enn þá betur, þó að flestir krakkar á Íslandi séu altalandi í ensku þá færðu dýpri skilning á því tungumáli,“ segir Kjartan og bætir við að það sé ekki nauðsynlegt að vera í hæsta gæðaflokki í sínum aldursflokki til að fara út. Villta vestrið „Þú þarft ekkert að vera framúrskarandi til að mæta hérna á þetta showcase. Þetta snýst bara um að finna rétta skólann og rétta stigið fyrir þig sem íþróttakrakka,“ segir Kjartan. Gríðarlegir peningar fara í gegnum skólastarfið í Bandaríkjunum, hvort sem það er í gagnfræðaskóla eða enn meira í háskólaumhverfinu. „Það hefur verið ákveðin villta vesturs-pæling í gangi þarna. Það er svona verið að reyna einhvern veginn að átta sig á þessu breytta umhverfi eftir að dómur féll í Bandaríkjunum þar sem úrskurðað var að háskólaleikmenn mættu fá greitt fyrir að spila. Það sem stekkur á mig bara svona horfandi á þetta utan frá er hversu miklir peningar hafa runnið þarna í gegn í öll þessi ár,“ segir Kjartan. Kjartan og Brynjar halda utan um viðburðinn. „Það jákvæða við þetta fyrir stelpur er að þú ert með lög í Bandaríkjunum, Title Nine. Stelpur njóta góðs af því,“ segir Brynjar en lögin fjalla um jafnræðisreglu milli kynjanna þegar kemur að greiðslum. Sævar Sævarsson og Benedikt Guðmundsson ræddu þetta umhverfi eftir innslag sem sýnt var í síðasta Körfuboltakvöldi. Sjálfur var Benni í gagnfræðaskóla í Bandaríkjunum. Sonur Sævars, knattspyrnumaðurinn Gabríel Aron Sævarsson, er í háskóla í Bandaríkjunum á knattspyrnustyrk. Ekki neitt hótel mamma „Ég þekki þetta náttúrulega frekar vel og fór sjálfur í high school. Ég hef hjálpað aðallega strákum og stelpum líka að fara í bæði high school og háskóla. Þetta er reynsla sem ég hefði aldrei viljað sleppa. Þú ert að flytja að heiman og fara í eitthvað alveg nýtt. Þetta var reyndar viðburðaríkt ár hjá mér þarna. Ég var ekki alltaf til friðs þarna og var hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga þarna í Bandaríkjunum. En þú veist, það var bara mér að kenna, skilurðu,“ segir Benedikt. „Þetta er bara þroskandi. Eins og þeir segja, stækkar sjóndeildarhringinn. Þú ert ekki á hóteli mömmu lengur. Það eru endalaust margir high schools og þú getur farið á alls konar forsendum. Þú ert bara að fá upplifunina. Kannski okkar bestu krakkar þurfa að pæla svolítið í hvaða skóla þau eru að fara, hvort þeir séu að fara að verða betri því að skólarnir eru misjafnir eins og þeir eru margir og þessir þjálfarar eru misjafnir eins og þeir eru margir,“ segir Benedikt. Klippa: Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga
Körfuboltakvöld Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Fleiri fréttir Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Sjá meira