Annar forsætisráðherra landsins til að falla frá á innan við ári Atli Ísleifsson skrifar 11. mars 2021 08:29 Hamed Bakayoko (til vinstri) varð 56 ára gamall. EPA/LEGNAN KOULA Hamed Bakayoko, forsætisráðherra Fílabeinsstrandarinnar, er látinn, 56 ára að aldri. Hann lést á sjúkrahúsi í Þýskalandi í gær eftir baráttu við krabbamein.
Bakayoko var skipaður forsætisráðherra í júlí á síðasta ári, í kjölfar óvænts dauðsfalls forverans Amadou Gon Coulibaly. Alassane Ouattara, forseti Fílabeinsstrandarinnar, hefur lýst Bakayoko sem merkum stjórnvitringi og mikilli fyrirmynd fyrir ungt fólk í landinu. Bakayoko var fluttur til Frakklands í febrúar til að gangast undir læknarannsóknir, en var síðar fluttur á sjúkrahús í Þýskalandi eftir að heilsu hans hrakaði. Bakayoko starfaði á árum áður sem framkvæmdastjóri í fjölmiðlum áður en hann sneri sér að stjórnmálum. Hann gegndi mikilvægu hlutverki í sáttamiðlun í borgarstríðinu í landinu í upphafi aldarinnar. Auk þess að gegna embætti forsætisráðherra Fílabeinsstrandarinnar gegndi hann einnig embætti varnarmálaráðherra. Forsetinn Ouattara hefur nú skipað Patrick Achi sem forsætisráðherra til bráðabirgða, en Achi hefur verið starfandi forsætisráðherra síðan í mars í fjarveru Bakayoko. Þá hefur Ouattara skipað yngri bróður sinn, Tene Birahima Ouattara, sem varnarmálaráðherra til bráðabirgða.
Fílabeinsströndin Andlát Tengdar fréttir Forsætisráðherrann lést eftir ríkisstjórnarfund Amadou Gon Coulibaly, forsætisráðherra Fílabeinsstrandarinnar, lést eftir að hann veiktist á miðjum ríkisstjórnarfundi í dag. Coulibaly var nýkominn heim úr meðferð vegna hjartveiki í Frakklandi en hann átti að vera forsetaframbjóðandi stjórnarflokksins í forsetakosningum í haust. 8. júlí 2020 20:23 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira
Forsætisráðherrann lést eftir ríkisstjórnarfund Amadou Gon Coulibaly, forsætisráðherra Fílabeinsstrandarinnar, lést eftir að hann veiktist á miðjum ríkisstjórnarfundi í dag. Coulibaly var nýkominn heim úr meðferð vegna hjartveiki í Frakklandi en hann átti að vera forsetaframbjóðandi stjórnarflokksins í forsetakosningum í haust. 8. júlí 2020 20:23