Mummi reynir að koma vitinu fyrir páfa Jakob Bjarnar skrifar 17. mars 2021 15:51 Guðmundur Ingi umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur ritast páfa bréf og biðlar til manngæsku hans og umburðarlyndis. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ritað hans heilagleika, Frans páfa í Vatíkaninu, opið bréf þar sem hann fer vinsamlegast fram á að hann dragi til baka ákvörðun um að samband samkynhneigðra para njóti ekki blessunar kaþólsku kirkjunnar. Guðmundur Ingi, sem jafnan er kallaður Mummi, hefur áður ritað páfa bréf svipaðs efnis. Það var árið 2018. Hann segist, í samtali við Vísi, ekki hafa fengið svar við því bréfi. En hann hafi reyndar ekki gert ráð fyrir því. „Neinei, en mér finnst mikilvægt að röddin heyrist. Ég þekki það ágætlega sem ráðherra að maður fær bréf og ekkert alltaf sem maður er beðinn um svör. En meðtekur skilaboðin. Nei, ég hef ekki fengið svar við því bréfi. En vona að boðskapurinn komist til skila.“ Og sérstaklega vonar Mummi að skilaboð bréfs þess sem hann ritar núna, þar sem hann skorar á páfann á að draga til baka ákvörðun um að banna blessun sambanda hjá samkynja pörum komist til skila. „Það myndi gera mig mjög glaðan ef hann myndi draga ákvörðunina til baka og ekki svara mér. Þá væri maður búinn að ná árangi.“ Sjá einnig: Vatíkanið bannar blessun samvistar samkynja para Guðmundur Ingi segir þetta horfa þannig við sér að kominn sé tími til að kaþólska kirkjan og reyndar trúarbrögð almennt, viðurkenni að kynhneigð er ekki lífsstíll, þetta er ekki val. „Að viðurkenna okkur sem erum hinsegin sem þau sem við erum. Veita því viðurkenningu. Það skiptir marga máli, sérstaklega þá sem eru trúaðir, að fá þessa viðurkenningu. Ég er sannfærður um að við fáum miklu betra samfélag þegar mannréttindi eru virt.“ Bjó í klaustri um mánaða skeið sem ungur maður Umhverfisráðherra segist einnig óttast, og vísar þá til áhrifa páfa, að þegar svona er í umræðunni geti það leitt til þess að fordómar og þekkingarleysi grasseri sem bitnar þá á fólki sem er hinsegin. Umslag bréfsins sem nú er í tösku einhvers póstburðarmannsins. Guðmundur Ingi væntir ekki svars en vonast til þess að skilaboðin heyrist. Mannréttindabarátta samkynhneigðra, ekki síst á Íslandi, hefur verið afskaplega farsæl. En staða samkynhneigðra víða um heim er slæm. En stundum hvarflar að manni að kirkjan sé sjálfri sér verst með þvergirðingi í þessum efnum sem byggist á morknum staf í hinni helgu bók. Og spyrja má af hverju samkynhneigðir telji ekki hreinlega vert að sniðganga kirkjuna. Ert þú trúaður sjálfur? „Nei, ég er ekkert sérstaklega trúaður. En ég bjó í kaþólsku klaustri í nokkra mánuði þegar ég var ungur maður og ber mjög mikla virðingu fyrir trúnni. Ber virðingu fyrir því að fólk trúi. Og ég veit að hún skiptir mörg mjög miklu máli. Þess vegna skiptir það svo miklu máli að trúarbrögðin séu opin fyrir því fólki sem trúir, alveg sama hver staða þess er. núverandi páfi hefur aldrei slegið mig öðru vísi en vera hjartahlýr maður og þess vegna skora ég á hann að standa með okkur hinsegin fólki.“ Stendur sjálfur utan trúfélaga Mummi stendur sjálfur utan trúfélaga en var íhugaði á yngri árum að gerast munkur þegar hann dvaldi í klaustri í Þýskalandi; þá voru að brjótast um í honum allskyns tilvistarlegar spurningar. Hann telur ekki vert að bregðast við afstöðu kirkjunnar með því að sniðganga hana. „Fyrir mér hlýtur kirkjan sem boðar ást og frið og kærleika að vilja vera opin fyrir öllum þegnum. Sumt fólk trúir. Trúin veitir því skjól, hugarró, von og gefur því tilgang. Þess vegna er erfitt fyrir slíkt fólk þegar kaþólska kirkjan í þessu hlutverki útilokar það. Páfinn hefur afskaplega mikil áhrif á marga sem eru í kaþólsku kirkjunni. Skilaboð sem páfinn sendir frá sér skipta verulega miklu máli að mati Guðmundar Inga sem freistar þess nú að koma páfanum í skilning um að samkynhneigð sé ekki tískufyrirbæri.Vísir/Vilhelm/Getty Images/Franco Origlia Það eru skilaboðni sem skipta svo miklu máli og þegar þau eru þessi, að tala gegn sjálfsögðum mannréttindum hinsegin fólks, finnst mér það mjög alvarlegt mál,“ segir Guðmundur Ingi. En tek það einnig fram að þessi umræddi páfi sem nú fær frá honum bréf hafi talað fyrir því að sýna eigi hinsegin fólki virðingu og skilning. „En ég vil sjá að við fáum viðurkenningu á því sem við erum.“ Ekki synd að sofa hjá samkynja einstaklingi Bréfið sem Guðmundur Ingi sendi páfa fer hér á eftir. Undir yfirskriftinni: „Það er ekki synd að sofa hjá samkynja einstaklingi. Hann fylgir bréfi sínu úr hlaði með að greina frá því að með því sé skorað á páfa að draga til baka umdeilda ákvörðun um að banna blessun sambanda hjá samkynja pörum. Kynhneigð er ekki tískufyrirbæri sem við skiptum út með nýrri vorlínu. „Ég hvet hann til þess að taka af skarið gagnvart íhaldsömum öflum í kaþólsku kirkjunni og verja sjálfsögð mannréttindi hinsegin fólks. Þetta er í annað skipti sem ég sendi Francis páfa bréf. Núverandi páfi hefur alltaf slegið mig sem góður og hjartahlýr maður og hann þarf hvatningu okkar og stuðning til góðra verka. Gleymum því aldrei að rödd okkar allra skiptir máli. Gefumst aldrei upp fyrir fordómum og þekkingarleysi.“ Bréfið er hér að neðan. Yðar heilagleiki, Frans páfi. Ég skrifa þér frá Íslandi. Ástæða þess að ég skrifa þér er að ég hef alltaf haft trú á þér. Ég held að þú viljir og getir breytt viðhorfum til hinsegin fólks innan sem utan kaþólsku kirkjunnar. Síðustu fréttir eru þó ekki uppörvandi. Það gerir mig dapran og vonsvikinn að lesa það að kaþólska kirkjan geti ekki lagt blessun sína yfir samkynja sambönd því guð blessi ekki synd. Hvernig getur það verið synd að elska þau sem maður elskar og vilja innsigla það með formlegum hætti? Þetta viðhorf stríðir gegn allri heilbrigðri skynsemi. Skilaboðin sem kaþólska kirkjan sendir með þessu til heimsins eru í senn dapurleg og mannfjandsamleg. Og, það er í raun enn verra í þessu samhengi að segja að guð geti hins vegar blessað synduga menn og veitt þeim tækifæri til að breytast. Hinsegin fólk er ekki að leitast eftir því að breyta kynhneigð eða kynvitund sinni. Það er nú mergurinn málsins. Við óskum eftir því að vera viðurkennd af samfélaginu sem við sjálf. Í síðasta bréfi mínu til þín minnti ég þig á að kynhneigð fólks er ekki lífsstíll og ekki val. Ekki heldur kynhneigð hinsegin fólks. Kynhneigð er ekki tískufyrirbrigði sem við skiptum út með nýrri vorlínu. Hún bara er. Maður í þinni stöðu er áhrifavaldur í lífi margra út um allan heim. Orðum þínum og ákvörðunum fylgir því mikil ábyrgð. Ég skora á þig að draga ákvörðun kaþólsku kirkjunnar til baka og standa með hinsegin fólki. Þú getur enn haft afgerandi jákvæð áhrif á viðhorf í garð okkar sem hinsegin eru, innan sem utan kirkjunnar. Finndu kjarkinn í gegnum bænir þínar og stattu með okkur. Með því stendur þú með sjálfsögðum mannréttindum og gætir komið í veg fyrir andúð og hatur á saklausu fólki sem vill bara vera eins og það er. Ég óska þér alls hins besta, Guðmundur Ingi Guðbrandsson. Páfagarður Mannréttindi Hinsegin Mest lesið Ástand á stúdentagörðum: Ítrekuð innbrot, mat stolið, dýnur í kjallara og hland á gólfi Innlent „Það kemur að því að við lendum í veseni“ Innlent Yfirgefið hreysi víkur fyrir hundrað íbúðum Innlent „Geta verið dauðsföll, þú veist ekkert hvað er í þessu“ Innlent Konan er fundin Innlent „Mér hefur aldrei verið sýnd jafn mikil vanvirðing“ Innlent „Selir“ skutu óvopnaða borgara í leyniaðgerð í Norður-Kóreu Erlent Hefur sætt umsáturseinelti í 14 ár: „Þetta hefur bara rústað lífi mínu“ Innlent Skoða að banna trans fólki að eiga skotvopn Erlent Sextán ára kveikti í herbergi sínu Innlent Fleiri fréttir Starfsfólk vilji setja fyrirtækinu mörk Lögregla hafi hlaupið á sig á Siglufirði: „Þetta eru einstök prúðmenni“ Ætla að rannsaka meint undirboð á kísilmálmi „Mér hefur aldrei verið sýnd jafn mikil vanvirðing“ Hélt eiginkonu og fimm börnum í heljargreipum Breyta Korpuskóla til að anna eftirspurn í Klettaskóla Vegabætur á Vestfjörðum opni tækifæri í vetrarferðamennsku Vilja aðgerðir strax Ástand á stúdentagörðum: Ítrekuð innbrot, mat stolið, dýnur í kjallara og hland á gólfi „Geta verið dauðsföll, þú veist ekkert hvað er í þessu“ Öllum börnum undir sex mánaða boðin forvörn gegn RS veiru Vildu fá að vita hvort ríkisstyrkir hefðu farið í málsóknir gegn orkuframkvæmdum Vara við ólöglegum megrunarlyfjum sem eru í umferð Konan er fundin Sextán ára kveikti í herbergi sínu Þremur sleppt úr haldi og brotaþoli útskrifaður „Það kemur að því að við lendum í veseni“ Ekki hægt að þaga þegar stjórnmálamenn leika sér að því að særa fram tröllin 252,6 milljónir runnið í ríkissjóð úr dánarbúum án lögerfingja á tíu árum Þrjú söfn í eina sæng Yfirgefið hreysi víkur fyrir hundrað íbúðum Líkamsárás á gistiheimili „Ekkert óeðlilegt við það að endurskoða þetta kerfi“ Tveir á sjúkrahús eftir harðan árekstur Vegurinn yfir Kjöl gerir ferðalöngum lífið leitt Stefna um mikla og hraða fólksfjölgun „alið á stéttaskiptingu á Íslandi“ Fimm handteknir í aðgerðum sérsveitar Ættum að fara varlega í orkudrykki með sætuefnum „Mér fannst þetta vera svolítil vonbrigði“ Allt tiltækt slökkvilið kallað út vegna elds í íbúð Sjá meira
Yðar heilagleiki, Frans páfi. Ég skrifa þér frá Íslandi. Ástæða þess að ég skrifa þér er að ég hef alltaf haft trú á þér. Ég held að þú viljir og getir breytt viðhorfum til hinsegin fólks innan sem utan kaþólsku kirkjunnar. Síðustu fréttir eru þó ekki uppörvandi. Það gerir mig dapran og vonsvikinn að lesa það að kaþólska kirkjan geti ekki lagt blessun sína yfir samkynja sambönd því guð blessi ekki synd. Hvernig getur það verið synd að elska þau sem maður elskar og vilja innsigla það með formlegum hætti? Þetta viðhorf stríðir gegn allri heilbrigðri skynsemi. Skilaboðin sem kaþólska kirkjan sendir með þessu til heimsins eru í senn dapurleg og mannfjandsamleg. Og, það er í raun enn verra í þessu samhengi að segja að guð geti hins vegar blessað synduga menn og veitt þeim tækifæri til að breytast. Hinsegin fólk er ekki að leitast eftir því að breyta kynhneigð eða kynvitund sinni. Það er nú mergurinn málsins. Við óskum eftir því að vera viðurkennd af samfélaginu sem við sjálf. Í síðasta bréfi mínu til þín minnti ég þig á að kynhneigð fólks er ekki lífsstíll og ekki val. Ekki heldur kynhneigð hinsegin fólks. Kynhneigð er ekki tískufyrirbrigði sem við skiptum út með nýrri vorlínu. Hún bara er. Maður í þinni stöðu er áhrifavaldur í lífi margra út um allan heim. Orðum þínum og ákvörðunum fylgir því mikil ábyrgð. Ég skora á þig að draga ákvörðun kaþólsku kirkjunnar til baka og standa með hinsegin fólki. Þú getur enn haft afgerandi jákvæð áhrif á viðhorf í garð okkar sem hinsegin eru, innan sem utan kirkjunnar. Finndu kjarkinn í gegnum bænir þínar og stattu með okkur. Með því stendur þú með sjálfsögðum mannréttindum og gætir komið í veg fyrir andúð og hatur á saklausu fólki sem vill bara vera eins og það er. Ég óska þér alls hins besta, Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Páfagarður Mannréttindi Hinsegin Mest lesið Ástand á stúdentagörðum: Ítrekuð innbrot, mat stolið, dýnur í kjallara og hland á gólfi Innlent „Það kemur að því að við lendum í veseni“ Innlent Yfirgefið hreysi víkur fyrir hundrað íbúðum Innlent „Geta verið dauðsföll, þú veist ekkert hvað er í þessu“ Innlent Konan er fundin Innlent „Mér hefur aldrei verið sýnd jafn mikil vanvirðing“ Innlent „Selir“ skutu óvopnaða borgara í leyniaðgerð í Norður-Kóreu Erlent Hefur sætt umsáturseinelti í 14 ár: „Þetta hefur bara rústað lífi mínu“ Innlent Skoða að banna trans fólki að eiga skotvopn Erlent Sextán ára kveikti í herbergi sínu Innlent Fleiri fréttir Starfsfólk vilji setja fyrirtækinu mörk Lögregla hafi hlaupið á sig á Siglufirði: „Þetta eru einstök prúðmenni“ Ætla að rannsaka meint undirboð á kísilmálmi „Mér hefur aldrei verið sýnd jafn mikil vanvirðing“ Hélt eiginkonu og fimm börnum í heljargreipum Breyta Korpuskóla til að anna eftirspurn í Klettaskóla Vegabætur á Vestfjörðum opni tækifæri í vetrarferðamennsku Vilja aðgerðir strax Ástand á stúdentagörðum: Ítrekuð innbrot, mat stolið, dýnur í kjallara og hland á gólfi „Geta verið dauðsföll, þú veist ekkert hvað er í þessu“ Öllum börnum undir sex mánaða boðin forvörn gegn RS veiru Vildu fá að vita hvort ríkisstyrkir hefðu farið í málsóknir gegn orkuframkvæmdum Vara við ólöglegum megrunarlyfjum sem eru í umferð Konan er fundin Sextán ára kveikti í herbergi sínu Þremur sleppt úr haldi og brotaþoli útskrifaður „Það kemur að því að við lendum í veseni“ Ekki hægt að þaga þegar stjórnmálamenn leika sér að því að særa fram tröllin 252,6 milljónir runnið í ríkissjóð úr dánarbúum án lögerfingja á tíu árum Þrjú söfn í eina sæng Yfirgefið hreysi víkur fyrir hundrað íbúðum Líkamsárás á gistiheimili „Ekkert óeðlilegt við það að endurskoða þetta kerfi“ Tveir á sjúkrahús eftir harðan árekstur Vegurinn yfir Kjöl gerir ferðalöngum lífið leitt Stefna um mikla og hraða fólksfjölgun „alið á stéttaskiptingu á Íslandi“ Fimm handteknir í aðgerðum sérsveitar Ættum að fara varlega í orkudrykki með sætuefnum „Mér fannst þetta vera svolítil vonbrigði“ Allt tiltækt slökkvilið kallað út vegna elds í íbúð Sjá meira