Áfram kalt í veðri Sylvía Hall skrifar 5. apríl 2021 07:26 Landsmenn mega búast við fallegu og rólegu veðri á morgun, en áframhaldandi kulda. Vísir/Vilhelm Frost var á landinu öllu í nótt og mældist það á bilinu 7 til 13 stig. Það dregur þó úr frosti eftir því sem líður á daginn og má búast við að það verði á bilinu 2 til 8 stig á landinu öllu.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands, en þar segir jafnframt að útlit sé fyrir breytilega átt í dag á bilinu 3 til 10 metrar á sekúndu en allhvöss norðvestanátt austanlands fram yfir hádegi. Dálítil snjóél voru á Norður- og Austurlandi í nótt en það dregur úr éljunum og verður líklega engin úrkoma á landinu um miðbik dags. Þá má búast við fallegu og rólegu veðri á morgun, hægur vindur og breytilegur og þurrt og bjart um mestallt land. Snjór fellur á miðvikudag víða um land og bætir í vindinn og áfram má búast við köldu veðri. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag:Hæg breytileg átt og léttskýjað, en norðan 8-13 m/s og lítilsháttar él með austurströndinni. Hiti frá frostmarki við suðurströndina, niður í 12 stiga frost í innsveitum norðaustanlands. Á miðvikudag:Breytileg átt 5-13, en norðaustan 10-18 um kvöldið. Snjókoma víða um land og frost 1 til 6 stig, en slydda við suður- og suðvesturströndina og hiti um eða rétt yfir frostmarki. Á fimmtudag:Norðan 8-15, en 15-20 með austurströndinni. Él á Norður- og Austurlandi, en bjartviðri sunnan heiða. Frost víða 3 til 8 stig. Hægari vindur um kvöldið og herðir á frosti. Á föstudag:Suðvestan og vestan 8-13. Dálítil snjókoma á vesturhelmingi landsins og síðar rigning við vesturströndina. Hlýnandi veður, hiti 0 til 4 stig síðdegis. Hægari vindur og bjartviðri um landið austanvert með minnkandi frosti. Á laugardag:Norðaustan- og austanátt og dálítil él norðan- og austanlands og með suðurströndinni, en þurrt annars staðar. Frost 0 til 7 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan. Á sunnudag:Austlæg átt og snjókoma eða slydda á sunnanverðu landinu, en þurrt norðantil. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Fleiri fréttir Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Sjá meira