Innslagið má sjá í heild sinni í spilaranum og hér fyrir neðan má finna uppskriftina að gellu-tacos að hætti Höllu.
Baunasalsa
- 1 dós svartar baunir
- 4 litlir hvítlauksgeirar
- 1/2 rauður chilli
- 1/2 rauð paprika
- 1/2 rauðlaukur
- 1/2 búnt steinselja
- safi úr 1/2 lime
- smá ólífuolía
- salt og pipar
Aðferð:
- Allt saxað mjög smátt og blandað saman
Tómatsalsa
- 250g kirsuberjatómatar
- 1/2 rauðlaukur
- 1/2 -1 búnt kóríander
- 1/2 rautt chilli
- safi úr 1/2 lime
- smá ólífuolía
- smá eplaedik
- salt og pipar
Aðferð:
- Allt saxað smátt og blandað saman
Basil-olía og mæjó
- Hvítlauksolía
- chilli
- ferskt basil
- smá salt
Aðferð:
- Allt sett í blandara og maukað fínt.
Basil mæjó
Aðferð:
- Smá basilolíu blandað saman við mæjónes (við gerum okkar eigið en það er hægt að nota hvað sem er) þar til mæjóið er orðið nokkuð grænt.
- Afganginn af olíunni er hægt að nota á samlokur með kjúkling, beikon og avókadó svo fátt eitt sé nefnt.

Tempura deig og djúpsteiktar gellur
- 800 g gellur, hreinsaðar
- 1 bolli hveiti + auka til þess að velta gellunum upp úr
- 1 msk sykur
- 1 msk maísmjöl
- 1 tsk salt
- 1 tsk lyftiduft
- 1 1/2 bolli sódavatn
- 1 L ljós olía, sem þolir djúpsteikingu
Aðferð:
- Allt hrært saman.
- Saltið fiskinn og setjið í hveiti og svo í tempurablönduna og því næst í heita olíuna.
- Grillið pönnukökuna (6") setjið banasalsa á og svo basilmæjó, því næst djúpsteiktu gellurnar eða hvaða fiskur sem er...
- tómatsalsað sett ofaná og toppað með fersku kóríander eða annarri góðri kryddjurt ef þið eruð ekki hrifin af kóríander.