Hönnuðu töskur úr gömlum 66°Norður sjófatnaði Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 27. apríl 2021 08:00 Hópurinn byrjaði verkefnið í skólanum en vörurnar verða til sölu í verslunum. Tabik Fimm stúlkur úr Verzlunarskóla Íslands hönnuðu töskur úr notuðum og gömlum 66°Norður sjófatnaði. Um var að ræða skólaverkefni en útkoman heppnaðist svo vel að töskurnar verða í sölu í verslunum 66°Norður.
Þær Auður Eyþórsdóttir, Brynja Rut Hjartardóttir, Ingunn Íris Óskarsdóttir, Katrín Rós Bárðardóttir og Tinna Björk Ingimarsdóttir stofnuðu hönnunarfyrirtækið Tabik og stefna á að fara áfram með hönnunarverkefnin. Þær eru allar nemendur í Verzlunarskóla Íslands og hver stafur í nafninu Tabik er fyrsti stafurinn í nöfnum stofnendanna. Þær segjast hafa ákveðið að framleiða vöru sem væri úr endurnýttu efni og umhverfisvæn. „Við öfluðum okkur síðan upplýsinga á netinu og sáum að axlartöskur eru mikið í tísku. Þá vorum við komnar með hugmyndina og þurftum að finna efni til að nota. Eftir nokkrar vangaveltur var að lokum ákveðið að endurnýta 66°Norður sjógalla af íslenskum sjómönnum.“ TABIK Fyrsta skref er að þrífa gallana Þær segjast hafi ákveðið strax í upphafi að framleiða vöru sem væri úr endurnýttu efni og umhverfisvæn. „Sjógallarnir frá 66° Norður urðu fyrir valinu vegna sögunnar og þeirra gæða sem fylgja þeim. Efnið er vatnshelt og mjög slitsterkt sem gerir það að verkum að töskurnar henta við allar íslenskar aðstæður. Þessir gallar hafa verið notaðir við fiskvinnslu í marga áratugi hér á landi og því var mikill kostur að við höfðum möguleika á því að fá sjógallana frá Brim. Einnig fannst okkur tilvalið að láta töskurnar heita Heimaey vegna þeirra tengsla sem sjógallarnir hafa við Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Sjóbuxurnar eru mjög áberandi í Herjólfsdal og er það ekki af ástæðulausu.“ Fyrsta skrefið þeirra er að þrífa sjógallana áður en þær geta farið að sauma.TABIK Stúlkurnar segjast fá sjógalla afhenta frá sjómönnum sem vinna á þremur skipum Akurey, Viðey og Helgu Maríu sem eru í eigu útgerðarinnar Brim. „Við erum mjög þakklátar þeim fyrir að hafa unnið svona vel með okkur. Við byrjum á að fá sjógallana frá sjómönnunum og næsta skref er að þrífa þá. Þegar við höfum þrifið þá eins vel og hægt er, þá er komið að því að sníða töskur úr þeim. Svo er bara hafist handa við það að sauma, festa smellur og axlarbönd.“ TABIK Vilja veita innblástur Þær hafa mikinn metnað fyrir verkefninu og stefna með það enn lengra. „Endurnýjun og sjálfbærni skiptir okkur máli vegna þess að við viljum koma vel fram við jörðina okkar og skilja við hana í góðu ástandi. Í nútímaneyslusamfélagi er mikið um hraðtísku sem fylgir gríðarleg sóun og það er því töluvert magn af efni og fatnaði sem fer til spillis. Það skiptir okkur miklu máli að við leggjum okkar af mörkum til þess að passa upp á umhverfið." Verkefnið heppnaðist vonum framar.TABIK 66°Norður er nú búið að bjóða stúlkunum í Tatik að selja töskurnar í verslun fyrirtækisins á Laugavegi og vonast er til að þær verði fáanlegar þar á næstu dögum. „Við munum halda áfram að framleiða töskur svo lengi sem áhugi er fyrir því. Með framleiðslu okkar miðum við að því málefni að veita fólki innblástur til þess að hugsa vel um umhverfið og endurnýta. Markmið okkar er einnig að ná góðum árangri í keppninni JA Iceland sem við erum að taka þátt í ásamt 14 öðrum framhaldsskólum og um 600 nemenda hér á Íslandi. Vinningsfyrirtækið fer í Evrópukeppni JA Europe sem er frábært tækifæri til þess að koma þessu mikilvæga málefni á framfæri,“ segja þær að lokum.
Tíska og hönnun Umhverfismál Mest lesið Segir sig frá hlutverkinu vegna óánægju með upprunann Bíó og sjónvarp Dragi úr trúverðugleika Eddunnar og útiloki fagfólk Bíó og sjónvarp Catherine O'Hara er látin Lífið Óbilandi trú á eigin ágæti Gagnrýni Ellefu milljónir fyrir óskrifaða óperu Menning Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Lífið „Ég er femínisti“ Lífið Ólafur Darri verður Þór Bíó og sjónvarp Brotist inn til sjónvarpsstjörnu og fótboltakappa Lífið Fólk velji einföldustu leiðina og útiloki foreldra sína Lífið Fleiri fréttir Þetta eru drottningar tískuvikunnar í París Klæðist því sem eykur sjálfstraustið Robyn í hönnun Sólar Hansdóttur Skilnaðarhringir slá í gegn: „Ég set minn á löngutöng“ „Ég fékk alveg gæsahúð þegar ég sá þetta“ Kjólasaga Brooklyns loðin Valentino er allur Ein heitasta stjarna í heimi Hailey Bieber slær í gegn á þvengnum „Eins nakin og ég kemst upp með“ Best klæddu Íslendingarnir 2025 Pæjur, börn og nóg af leðri fyrir alla Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Ástin blómstrar í appelsínugulu leðri „Maður á ekki að vera feiminn við að vera fínn“ Einn áhrifamesti arkitekt samtímans látinn Best klæddu stjörnurnar samkvæmt Vogue Langskemmtilegast að vera alveg sama Skilaboð frá Höllu á Facebook upphaf að farsælu samstarfi Heitustu pörin í húrrandi jólagír Sjá meira