Einn greindist innanlands og var utan sóttkvíar Atli Ísleifsson skrifar 25. maí 2021 10:48 Rúmlega 6.500 manns hafa greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldusins. Vísir/Vilhelm Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Sá sem greindist var utan sóttkvíar. Um er að ræða fyrsta kórónuveirusmitið innanlands frá 19. maí.
Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni Covid.is. 40 eru nú í einangrun, en voru 48 síðastliðinn föstudag þegar síðan covid.is var síðast uppfærð. 113 eru nú í sóttkví, en voru 157 á föstudag. 1711 eru nú í skimunarsóttkví. Þá er einn nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, en voru þrír síðastliðinn föstudag. Fimm smit greindust á landamærum í gær þar af fjögur virk smit í fyrri landamæraskimun og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilviki eins. Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 7,1, en var 10,4 á föstudag. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 3,0, en var 2,7 á föstudag. 80.464 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 83.351 til viðbótar. 6.560 hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins í febrúar á síðasta ári. Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru 29 látin. Alls voru tekin 510 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá voru 735 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun og 335 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun. Uppfært Sjúklingur lést af völdum Covid-19 á Landspítalanum um helgina, laugardaginn 22. maí. Hinn látni var á sextugsaldri og var lagður inn fyrir um mánuði síðan. 30 hafa hér með látist af völdum veirunnar hér á landi. Aðstandendum hins látna er vottuð samúð á vef Landspítalans, þar sem greint er frá andlátinu. Umrætt andlát er það fyrsta sem verður á landinu frá því í lok desember á síðasta ári. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Sjá meira