Hipsumhaps gefur út nýja plötu Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 31. maí 2021 09:44 Fannar Ingi Friðjónsson gaf í gær út Hipsumhaps plötuna Lög síns tíma. Önnur breiðskífa Hipsumhaps er komin út ber heitið Lög síns tíma. Um er að ræða samtímaverk sem að hefur verið í vinnslu frá því að samkomubannið var sett á í mars á síðasta ári
Lög síns tíma fylgir á eftir fyrstu plötu Hipsumhaps, Best gleymdu leyndarmálin, sem kom út haustið 2019. Upptökur fóru fram síðastliðinn vetur í upptökuverunum í Tónhyl og Sundlauginni. Fannar Ingi Friðþjófsson samdi sjálfur alla texta plötunnar. Þessi plata var útsett af Fannari Inga og Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni. Platan er nú komin í heild sinni á Spotify. Fannar Ingi sagði um plötuna í viðtali við Vísi á dögunum: „Mér finnst hún þroskaðari og í raun ennþá meira Hipsumhaps.“ Plötuumslagið er hannað af Sigurði Ými Kristjánssyni og skartar ljósmynd eftir Ragnar Axelsson, RAX, ljósmyndara hér á Vísi. Plötuumslagið er hannað af Sigurði Ými Kristjánssyni og skartar ljósmynd eftir Ragnar Axelsson (RAX). Hipsumhaps hlaut mikið lof fyrir plötuna Best gleymdu leyndarmálin á síðasta ári sem að innihélt lög eins og Lífið sem mig langar í og Fyrsta ástin. Fannar segir að nýja platan gangi alveg upp sem framhald af þeirri fyrri. Lögin 2021, Þjást, Á hnjánum og Meikaða hafa vakið töluverða athygli síðustu vikur. Hér fyrir neðan má sjá myndbandið við lagið Þjást af plötunni Lög síns tíma. „Þjást er lag sem ég samdi fyrir nokkrum árum og fjallar í rauninni bara um samskipti við aðra manneskju, sem þú ert hrifinn af. Upplifa stórar tilfinningar, það þarf ekkert að vera bara að vera ógeðslega ástfanginn, þetta getur líka verið kvíði yfir því að manneskjan sé ekki að upplifa það sama og fara fram úr sér,“ segir Fannar Ingi um lagið. Fannar Ingi tók sjálfur töluverða persónulega áhættu við að gera þessa plötu í miðjum heimsfaraldri. Plötuna Lög síns tíma fjámagnaði hann meðal annars með því að selja auglýsingar í tónlistarmyndbandið fyrir lagið Meikaða. „Auðvitað gerum við þá myndband sem er eitt stórt „product placement“. Feit pæling sem gekk upp. Lil Binni og crewið með þetta á hreinu. Og þetta endaði síðan á að vera mín leið til þess að fjármagna plötuna sem er snilld.“
Tónlist Tengdar fréttir Fjármagnaði plötuna með „sponsaðasta“ myndbandi Íslandssögunnar Hipsumhaps sendi í dag frá sér nýtt tónlistarmyndband við lagið Meikaða. Myndbandið er stútfullt af auglýsingum en Fannar fór frumlegar leiðir til þess að fjármagna útgáfu væntarlegrar plötu Hipsumhaps. 27. maí 2021 17:30 „Getur líka verið kvíði yfir því að manneskjan sé ekki að upplifa það sama“ Vísir frumsýnir í kvöld myndband við lagið Þjást með Hipsumhaps. Lagið er nú einnig komið út á Spotify og er af væntanlegri plötu Hipsumhaps. 12. apríl 2021 22:01 Mest lesið „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Lífið Mugison þakkar innilega fyrir sig Tónlist Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Lífið Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Lífið Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Lífið „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Lífið Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: Verðbólga, eldflaug og Dior Lífið Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Bíó og sjónvarp Kúluhúsið falt fyrir níutíu milljónir Lífið Fleiri fréttir Mugison þakkar innilega fyrir sig Segir gagnrýnina til marks um normalíseringu barnagirndar Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Blóð, sviti og tár skemmtilegra en að prumpa út lögum Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Stendur með Bríeti í deilunni við Pálma Þá var kátt í höllinni Shakira sýknuð Þrjú hundruð kórbörn frumflytja lag Herra Hnetusmjör fagnar fyrir fullri Laugardalshöll „Þetta var erfiðasta ár lífs míns“ Nennti ekki að meika það Stjörnufans hjá Birni á Edition Fjarsamband alltaf erfitt Eurovision fer fram í vikunni en hlustunartölur hríðfalla Tónleikum Yasiin Bey frestað með dags fyrirvara fram á haust Ástarsorgin átakanleg en gjöful Joey Christ, Dóri DNA, og 7Berg í upphitun fyrir Yasiin Bey Kynþokkafullir með fortíðarþrá Stuðpinnar skáluðu í innsetningunni Shakira söng fyrir milljónir á Copacabana DJ Krush á Extreme Chill Of Monsters and Men með stórtónleika á Íslandi Ásgeir heldur stórtónleika í Hörpu í ágúst Úlfarnir rifu næstum þakið af Austurbæ Þjóðþekktir tónlistarmenn koma fram í heimahúsum Flóni og Alaska ekki lengur „bara vinir“ Námið ekki eins krefjandi og á Tene Sjá meira
Fjármagnaði plötuna með „sponsaðasta“ myndbandi Íslandssögunnar Hipsumhaps sendi í dag frá sér nýtt tónlistarmyndband við lagið Meikaða. Myndbandið er stútfullt af auglýsingum en Fannar fór frumlegar leiðir til þess að fjármagna útgáfu væntarlegrar plötu Hipsumhaps. 27. maí 2021 17:30
„Getur líka verið kvíði yfir því að manneskjan sé ekki að upplifa það sama“ Vísir frumsýnir í kvöld myndband við lagið Þjást með Hipsumhaps. Lagið er nú einnig komið út á Spotify og er af væntanlegri plötu Hipsumhaps. 12. apríl 2021 22:01