Sest í helgan stein eftir farsælan feril sem sprengjuleitarrotta Vésteinn Örn Pétursson skrifar 4. júní 2021 21:09 Magawa með medalíuna sem hann fékk á síðasta ári, fyrir vel unnin störf. Apopo Rottan Magawa, sem hlotið hefur gullna medalíu fyrir hetjudáðir sínar, hefur sest í helgan stein og lætur af störfum sem sprengjuleitarrotta.
Breska ríkisútvarpið greinir frá því að þessi afríska risapokarotta ætli nú að njóta þess sem eftir er af ævinni eftir að hafa þefað uppi 71 jarðsprengju og aðrar ósprungnar sprengjur í Kambódíu. Talið er að hátt í sex milljónir jarðsprengja séu grafnar víðs vegar um Kambódíu eftir borgarastyrjöld sem geisaði í landinu á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Haft er eftir Malen, þjálfara rottunnar knáu, að tekið sé að hægjast á Magawa og því sé best að „virða óskir hans“ um áhyggjulaust ævikvöld. Rottur á borð við Magawa verða að meðaltali um sjö ára gamlar. Magawa var sérstaklega þjálfaður af belgísku samtökunum Apopo, sem eiga höfuðstöðvar í Tansaníu og sérhæfa sig í því að þjálfa rottur á borð við Magawa til að leita uppi jarðsprengjur. Þá eru rotturnar einnig þjálfaðar til að finna berkla í fólki. Samkvæmt samtökunum er Magawa ein sú besta rotta sem notið hefur við í sprengjuleitargeiranum og í síðasta mánuði var honum veitt gullmedalía frá PDSA-samtökunum, sem eru bresk góðgerðasamtök stofnuð utan um velferð gæludýra.
Kambódía Dýr Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira