Fyrrum samherji Gylfa: „Ancelotti laug að mér“ Anton Ingi Leifsson skrifar 29. júní 2021 07:01 Ancelotti er farinn til Spánar. Tony McArdle/Getty Joshua King, fyrrum samherji Gylfa Sigurðssonar, segir að Carlo Ancelotti, hafi logið að sér er hann gekk í raðir Everton.
Norski landsliðsmaðurinn er sem stendur án félags eftir að samningur hans við Everton rann út í sumar. Hann kom til félagsins í febrúar og byrjaði ekki einn deildarleik. King vandar stjóranum Ancelotti heldur ekki kveðjurnar í viðtali við norska Dagbladet þar sem hann segir að Ítalinn hafi logið að sér. „Já, ég trúi því,“ sagði King aðspurður um það hvort að Ancelotti hafi logið að sér um mögulegan spiltíma hjá þeim bláklæddu í Bítlaborginni. „Þannig er fótboltaheimurinn. Svona gerist þetta á toppi fótboltans en ég sé ekki eftir því að hafa gengið í raðir Everton.“ „En já, hann laug að mér. En aftur: Það eru ekki margir heiðarlegir innan fótboltans. Ég átti ekkert samband við Ancelotti.“ Samningur King við Bournemouth átti að renna út í sumar en Everton keypti hann á fimm milljónir punda í febrúar. Hann náði þó aldrei að sýna sig og sanna. „Þegar boðið kom frá Everton þá fann ég að ég yrði að taka því. En ég ímyndaði mér ekki að í átján leikjum fengi ég ekki að byrja einn.“ Bæði King og Ancelotti eru nú farnir frá Everton. King er samningslaus en Ancelotti er tekinn við Real Madrid á nýjan leik. Vinteren 2021 byttet Joshua King (29) ut Bournemouth med Everton. Nå snakker den norske angriperen ut om «løgnene» til Carlo Ancelotti (62). https://t.co/yUa3UUhPBC— Dagbladet Sport (@db_sport) June 28, 2021
Enski boltinn Mest lesið Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Íslenski boltinn McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Fótbolti Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira