Carragher varar stuðningsmenn Liverpool við Arnar Geir Halldórsson skrifar 31. júlí 2021 17:02 Van Dijk í leiknum afdrifaríka. vísir/getty Liverpool goðsögnin Jamie Carragher segir stuðningsmenn félagsins ekki geta búist við því að Virgil van Dijk snúi til baka í vörn liðsins og smelli öllu í lás á einu augnabliki.
Hollenski varnarmaðurinn lék sinn fyrsta leik í langan tíma á dögunum þegar hann tók þátt í æfingaleik Liverpool gegn Herthu Berlin. Hann meiddist alvarlega á hné í leik gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og hafði fjarvera hans veruleg áhrif á gengi liðsins. „Það þarf að fara varlega með hann og ég held að Jurgen Klopp muni gera það,“ segir Carragher. „Ég held að við ættum ekki að hafa vonir um að Virgil van Dijk komi aftur inn í Liverpool liðið og það muni sjálfkrafa vinna ensku úrvalsdeildina í kjölfarið.“ Liverpool varð Englandsmeistari árið 2020og þótti van Dijk vera mikilvægasti hlekkurinn í liðinu það tímabilið. Liðið var aldrei nálægt því að verja titilinn á síðustu leiktíð. Carragher varar stuðningsmenn félagsins við því að búast við of miklu af Hollendingnum, í það minnsta fyrst um sinn. „Hann lenti í mjög alvarlegum meiðslum og það er mikilvægt að hann fái að fara rólega af stað aftur. Ef hann nær sér fullkomlega er hann besti varnarmaður heims og það er það sem Liverpool vill hafa næstu fimm eða sex árin, ekki næstu fimm eða sex vikurnar.“ „Ef hann nær ekki fyrstu leikjum tímabilsins er það ekki hræðilegt. Þetta snýst um að Virgil van Dijk nái fullri heilsu svo hann hafi möguleika á að ná fram sínu besta með Liverpool næstu árin,“ segir Carragher. Liverpool hefur leik í ensku úrvalsdeildinni þann 14.ágúst næstkomandi þegar liðið sækir nýliða Norwich heim.
Enski boltinn Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Fleiri fréttir Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Sjá meira