Amanda lagði upp í stórsigri og Blikar mæta heimakonum Sindri Sverrisson skrifar 18. ágúst 2021 16:51 Ingibjörg Sigurðardóttir, þriðja frá hægri í efri röð, var að vanda í byrjunarliði Vålerenga í dag. Twitter/@VIFDamer Amanda Andradóttir lagði upp eitt af mörkum Vålerenga og Ingibjörg Sigurðardóttir stóð vaktina í vörn liðsins þegar það sló út Mitrovica í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í dag.
Vålerenga vann leikinn 5-0 og skoraði varamaðurinn Elise Thorsnes þrennu í leiknum en Janni Thomsen fyrstu tvö mörkin. Amanda, sem kom inn á sem varamaður á 61. mínútu, lagði upp síðasta markið með frábærri sendingu yfir vörn Mitrovica. Ingibjörg lék allan leikinn. Vålerenga mætir því heimakonum í PAOK frá Grikklandi í úrslitaleik á laugardaginn um að komast í seinni umferð undankeppninnar. Ljóst hverjum Blikar mæta á laugardag Íslandsmeistarar Breiðabliks spila einnig úrslitaleik á laugardaginn, gegn heimaliði Gintra í Litháen. Blikakonur unnu stórsigur á KÍ Klaksvík í Litháen í dag og Gintra var svo að vinna Flora frá Eistlandi, 2-0. Í þessari nýju útgáfu Meistaradeildar Evrópu þurfa lið að komast í gegnum 1. og 2. stig undankeppni til að komast í aðalkeppnina. Vinni Blikakonur lið Gintra leika þær á seinna stigi undankeppninnar um næstu mánaðamót (tveggja leikja einvígi 31. ág./1. sept. og 8./9. sept.) Í aðalkeppninni leika sextán bestu lið Evrópu, í fjórum fjögurra liða riðlum, frá október og fram í desember. Útsláttarkeppni átta bestu liðanna hefst svo í mars.
Meistaradeild Evrópu Breiðablik Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Íslenski boltinn Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Mark tekið af Vinicius og fékk rautt spjald í staðinn Fótbolti „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Fótbolti Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Íslenski boltinn Fleiri fréttir Aflýstu leik vegna skutlukasts „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ „Þetta var alltaf mitt mark“ „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Mark tekið af Vinicius og fékk rautt spjald í staðinn Kristian Nökkvi og félagar nokkrum stigum frá toppnum Sigurganga Börsunga heldur áfram Svekkjandi tíu manna janftefli hjá Frey „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Fiskaði rautt spjald í sigri Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Henderson í stuði í stórsigri Mikael lagði upp og meiddist en Logi í basli gegn Salah Magnað mark dugði fyrir sigri „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Tap í heimalandinu reyndist síðasti naglinn í kistuna Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Uppgjörið: Njarðvík - Tindastóll 77-85 | Vinna í deildum Evrópu og hér heima Sjá meira