Páfi hafnar fréttum um að hann ætli að segja af sér Kjartan Kjartansson skrifar 1. september 2021 10:09 Frans páfi er 84 ára gamall. Ítalskt dagblað hélt því fram að hann gæti sagt af sér í kringum 85 ára afmælið í desember. Vísir/EPA Frans páfi segir ekkert hæft í fréttum ítalskra fjölmiðla um að ætli að segja af sér á næstunni. Hann lifi nú fullkomulega eðlilegu lífi eftir ristilaðgerð sem hann gekkst undir í júlí.
Ítalska dagblaðið Libero hélt því fram að páfakjör væri á næsta leiti því Frans páfi hefðu rétt um að segja af sér, mögulega í kringum 85 ára afmæli sitt í desember. Páfi hafnaði því alfarið í viðtali við spænsku útvarpsstöðina COPE. Fullyrti hann að það hefði ekki svo mikið sem hvarflað að honum að segja af sér. Þá segist hann annar maður eftir ristiluppskurðinn í júlí. Hann lá á sjúkrahúsi í ellefu daga eftir aðgerðina en hann hafði þjáðst af þrengslum í ristli. Nú segist hann geta borðað allt sem hann gat ekki gert áður. Þakkaði hann karkyns hjúkrunarfræðingi í Páfagarði fyrir að sannfæra sig um að fara í aðgerð frekar en að halda áfram meðferð með sýklalyfjum og öðrum lyfjum. „Hann bjargaði lífi mínu,“ sagði Páfi, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Til að sýna fram á að hann ætli sér alls ekki að láta af embætti lýsti Frans ferðadagskrá næstu mánaða. Hann stefnir meðal annars á að mæta á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow í nóvember.
Páfagarður Trúmál Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira