Innlent

Heitt vatn flæddi upp úr götum í Hafnarfirði

Eiður Þór Árnason skrifar
Heitt vatn leitaði upp úr jörðu í Setbergi í Hafnarfirði. 
Heitt vatn leitaði upp úr jörðu í Setbergi í Hafnarfirði.  Vísir

Heitt vatn flæddi upp úr götum í Hafnarfirði þar sem leki hefur komið upp í heitavatnslögnum við Hlíðarberg, Vesturgötu og Öldugötu. Slökkviliðsmenn voru sendir á vettvang til að tryggja öryggi en ekki sést lengur vatn á yfirborði.

Talið er að orsökin sé bilun í lokum við Kaplakrika sem leiddi til þess að þrýstingur jókst í kerfinu. Heitavatnslaust eða lágur þrýstingur var í suðurhluta Hafnarfjarðar um tíma en ekki er vitað af heitavatnsleysi hjá íbúum og fyrirtækjum á þessari stundu. Þrýstingur fer þó lækkandi í Setbergi.

Uppfært klukkan 20: Hafnarfjörður er kominn með heitt vatn að öllu leyti fyrir utan hluta Öldugötu og Setbergið en þar standa yfir viðgerðir.

Þurfi að vera viðbúin að loka gluggum til að halda yl

Að sögn Veitna er ekki hætta vegna heits vatns á yfirborði en skemmdir hafa orðið á malbiki. Verið er að hefja viðgerðir en ekki er vitað hversu langan tíma þær munu taka þar sem bilanirnar eru undir yfirborði. Ekki sé ljóst við hvað er að eiga fyrr en grafið verður ofan af lögnunum.

„Líklegt er að hægt verði að veita öllum íbúum og fyrirtækjum í Hafnarfirði heitt vatn eftir öðrum leiðum og ætti því ekki að verða skortur á því. Takist það ekki þannig að skortur verði á heitu vatni bendum við fólki á að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en nauðsyn krefur til að halda yl í húsum,“ segir í tilkynningu frá Veitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×