Von á lægð að landinu í nótt Atli Ísleifsson skrifar 3. september 2021 07:11 Hiti verður á bilinu tólf til tuttugu stig í dag, þar sem hlýjast verður austanlands. Vísir/Vilhelm Nokkur stöðugleiki hefur verið í veðrinu undanfarna daga en um helgina er útlit fyrir breytingar á því.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að í dag verði sunnan og suðaustan fimm til þrettán metrum á sekúndu en þrettán til átján á norðanverðu Snæfellsnesi. Áfram verði þungbúið og lítilsháttar súld með köflum sunnan- og vestantil á landinu en bjartviðri á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti verður á bilinu tólf til tuttugu stig, þar sem hlýjast verður austanlands. „Í nótt er von á lægð að landinu með vaxandi suðaustanátt, 15-23 m/s og rigning um sunnan- og vestanvert landið. Hvassast verður í vindstrengjum á norðanverðu Snæfellsnesi og þar geta hviður verið um og yfir 30 m/s. Norðaustantil verður þó heldur hægari vindur, sunnan 8-13 m/s og bjart með köflum. Hiti 11 til 19 stig, hlýjast á Norðausturlandi.“ Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Sunnan og suðaustan 8-15 m/s og rigning á vesturhelming landsins en enn hvassara í vindstrengjum á norðanverðu Snæfellsnesi. Hægari vindur og bjart með köflum austantil. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast norðaustanlands. Á sunnudag: Suðaustlæg og síðar suðvestlæg átt og rigning með köflum sunnan- og vestanlands, en lengst af þurrt norðaustantil. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Á mánudag: Suðlæg átt og vætusamt, einkum um sunnan- og vestanvert landið. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag: Suðvestlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og víða bjartviðri. Kólnar norðanlands. Á miðvikudag: Suðvestlæg átt og að mestu léttskýjað. Hiti breytist lítið. Á fimmtudag: Útlit fyrir suðvestanátt og skúrir, en bjart með köflum austantil.
Veður Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Sjá meira