Veður

Hvessir all­veru­lega á morgun

Agnar Már Másson skrifar
Von er á hvassviðri á sunnanverðu landinu á morgun.
Von er á hvassviðri á sunnanverðu landinu á morgun. Vísir/Vilhelm

Veðurfræðingar á Veðurstofu Íslands vekja athygli á því að snemma á morgun gangi í austan hvassviðri syðst á landinu sem geti verið varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að í dag sé spáð suðvestlægri átt 3-8 m/s og dálítilli rigningu eða stöku skúrum víða um land. Styttir upp sunnanlands eftir hádegi. Hiti yfirleitt á bilinu 7 til 13 stig.

Á morgun verði austan og suðaustan 10-20 m/s með rigningu, hvassast syðst. Undir Eyjafjöllum, við Mýrdalsjökul og í Öræfum fara hviður upp í 30 m/s sem geta verið varasamar fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Snýst í heldur hægari suðlægar áttir með skúrum síðdegis, en léttir upp á Norðausturlandi. Hiti breytist lítið.

Á þriðjudag og miðvikudag er útlit fyrir suðvestanátt með skúrum eða rigningu, en úrkomulítið á Norðaustur- og Austurlandi.

Á fimmtudag kemur ný lægð með hvassviðri og rigningu, en snýst í norðlæga átt með rigningu og slyddu fyrir norðan á föstudag. Kólnar í veðri norðanlands, en áfram milt sunnan heiða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×