Elliott segir að Struijk hafi ekki átt að fá rautt fyrir tæklinguna Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. september 2021 08:01 Harvey Elliott segist ekki eiga neitt sökótt við Pascal Struijk. getty/Laurence Griffiths Harvey Elliott meiddist illa eftir tæklingu Pascals Struijk í leik Leeds United og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Hann ber engan kala til Struijks og segir að hann hefði ekki átt að fá rautt spjald fyrir tæklinguna.
Í færslu á Instagram þakkar Elliott fyrir allar kveðjurnar og stuðninginn sem hann hefur fengið og kvaðst vera hálf orðlaus yfir honum. Hann sagði að núna tæki við endurhæfing og hann myndi koma sterkari til baka eftir hana. View this post on Instagram A post shared by Harvey Elliott (@harveyelliott07) Í athugasemdakerfinu tjáði Elliott sig einnig um tæklingu Struijks. Hann sagði að um óhapp hafi verið að ræða og Struijk hefði ekki átt skilið að fá rauða spjaldið fyrir tæklinguna. „Þetta var ekki honum að kenna. Þetta var ekki rautt spjald heldur bara slys og svona hlutir gerast í fótbolta. Ég kem sterkari til baka, hundrað prósent. Takk fyrir stuðninginn,“ skrifaði Elliott. Harvey Elliott on Struijk s challenge (via Instagram) pic.twitter.com/SauQC5eR8U— Phil Hay (@PhilHay_) September 13, 2021 Hinn átján ára Elliott byrjaði tímabilið af miklum krafti og fékk mikið lof fyrir frammistöðu sína. Hann kom aftur til Liverpool í sumar eftir að hafa verið á láni hjá Blackburn Rovers í B-deildinni á síðasta tímabili. Elliott kom til Liverpool frá Fulham fyrir tveimur árum. Hann varð yngsti leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar þegar hann kom inn á sem varamaður í leik Fulham og Wolves 4. maí 2019, þá aðeins sextán ára og þrjátíu daga gamall.
Enski boltinn Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Segir Messi hafa rifist við þjálfarann um taktíkina í úrslitaleiknum Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Fótbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Fótbolti Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Fótbolti Fleiri fréttir Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Sjá meira