Viðskipti innlent

Loft­­leiðir semja um flug til Kúbu og Suður­­skauts­landsins

Atli Ísleifsson skrifar
Fyrsta skrefið í samstarfi Loftleiða, dótturfélags Icelandair, og Anmart Superior Travel eru þrettán ferðir á milli Flórída og Havana á Kúbu á tímabilinu október til desember næstkomandi.
Fyrsta skrefið í samstarfi Loftleiða, dótturfélags Icelandair, og Anmart Superior Travel eru þrettán ferðir á milli Flórída og Havana á Kúbu á tímabilinu október til desember næstkomandi. Vísir/Vilhelm

Loftleiðir, dótturfélag Icelandair Group, er í viðræðum við Anmart Superior Travel sem er ferðaheildsali í Flórída um samstarf um flug þaðan. Fyrsta skrefið í því samstarfi eru þrettán ferðir á milli Flórída og Havana á Kúbu á tímabilinu október til desember næstkomandi. Einnig hefur verið samið um flug milli Chile og Suðurskautslandsins.

Þetta staðfestir Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, í samtali við Vísi, en sagt var frá því á síðunni One Mile at a Time að Icelandair hafi sótt um heimild til bandaríska samgönguráðuneytisins að fljúga milli Orlando í Flórída og Kúbu. 

Ásdís Ýr segir fyrsta skrefið í því samstarfi Icelandair og Anmart Superior Travel séu einmitt þrettán ferðir á milli Flórída og Havana á Kúbu á tímabilinu október til desember næstkomandi. 

„Flugið passar vel við flugáætlun Icelandair til Orlando en venjulega þegar Icelandair flýgur frá Íslandi til Orlando stoppa vélarnar þar í um 22 klukkustundir áður en þær fljúga aftur heim og tengjast leiðakerfi félagsins á ný.

Með því að skipuleggja flug frá Orlando til Havana í tengslum við þessi flug gefst tækifæri til að auka nýtingu flugvélanna, sem kemur sér vel á þessum tímum, og skapar mikilvægar tekjur fyrir samstæðuna. Loftleiðir hefur áður skipulagt verkefni í leiguflugi frá bæði Boston og Detroit til áfangastaða í karabíska hafinu fyrir aðrar bandarískar ferðaskrifstofur og hefur það gengið vel,“ segir Ásdís Ýr. 

Fimmtán flug til Suðurskautslandsins

Ásdís Ýr segir að þessu til viðbótar þá hafi Loftleiðir einnig samið um fimmtán flug á milli Punta Arenas í Chile og Union Glacier á Suðurskautslandinu fyrir fólk sem ætlar meðal annars að ganga á Suðurpólinn.

„Fyrir utan þetta eru einnig fyrirhugaðar tvær ferðir til Troll á Suðurskautslandinu fyrir rannsóknarstofnunina Norwegian Polar Institute. Þessi verkefni eru auðvitað háð því að aðstæður vegna Covid verði hagfelldar,“ segir Ásdís Ýr.

Loftleiðir er dótturfélag Icelandair Group og sinnir leiguflugi og ráðgjöf til fyrirtækja í flugiðnaði alþjóðlega. Þessir starfsemi skapar fjölbreytt tækifæri og tekjur fyrir Icelandair Group til viðbótar við hefðbundna starfsemi félagsins í millilanda- og innanlandsflugi en flugvélar Icelandair eru nýttar í þessi verkefni og eru flugin í flestum tilfellum mönnuð áhöfnum félagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×