Selfyssingar með sex marka forystu eftir fyrri leikinn Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 18. september 2021 14:47 Atli Ævar Ingólfsson skoraði fjögur mörk fyrir Selfyssinga í dag. Vísir/Hulda Selfyssingar heimsóttu tékkneska liðið Koprivnice í fyrri leik liðanna í fyrstu umferð Evrópubikarkeppni karla í handbolta í dag. Selfyssingar voru með frumkvæðið allan leikinn og unnu að lokum öruggan sex marka sigur, 25-31.
Einar Sverrisson skoraði fyrsta mark leiksins og kom Selfyssingum í forystu sem að þeir létu aldrei af hendi. Þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður var staðan orðin 10-6, Selfyssingum í vil. Þeir náðu mest sjö marka forskoti í fyrri hálfleik, en það náðist þegar að Hergeir Grímsson skoraði af vítapunktinum rétt áður en hálfleikurinn var flautaður af. Staðan var 19-12 þegar að gengið var til búningsherbergja. Nokkuð jafnræði var með liðunum í seinni hálfleik, en þegar hann var hálfnaður var staðan 26-18. Heimamenn náðu að klóra aðeins í bakkann og minnkuðu muninn í sex mörk þegar að tæp mínúta var til leiksloka. Selfyssingar náðu ekki að nýta sér seinustu sókn leiksins og lokatölur því 25-31 og Selfyssingar fara með sex marka forskot í seinni leik liðanna sem fram fer á morgun klukkan 16:00 að íslensku tíma. Einar Sverrisson var markahæstur í liði Selfyssinga með sjö mörk. Þar á eftir komu Ragnar Jóhannsson með sex og Hergeir Grímsson með fimm.
Handbolti UMF Selfoss Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Ísland - Króatía 5-0 | Íslensk einstefna á Laugardalsvelli Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Atlético yfir í 89 mínútur og raunir United-manna aukast Fótbolti Hákon og félagar máttu sín lítils þegar ensku meistararnir skiptu um gír Fótbolti Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Handbolti Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Handbolti Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira