Innlent

For­sendur lífs­kjara­samningsins brostnar og for­maður VR kennir stjórn­völdum um

Árni Sæberg skrifar
Ragnar Þór Ingólfsson er formaður VR.
Ragnar Þór Ingólfsson er formaður VR. Vísir/Egill

Forsendunefnd SA og ASÍ komst að þeirri niðurstöðu á fundi í dag að forsendur lífskjarasamningsins væru brostnar og því þurfi að samningsaðilar að endurskoða kjarasamninga sín á milli fyrir mánaðarmót.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir í samtali við Vísi að ASÍ og SA hafi staðið við samninginn að öllu leyti. Forsendubresturinn sé því alfarið á ábyrgð stjórnvalda.

Hann segir mörg mikilvæg atriði í samningnum hafa verið á könnu stjórnvalda en að þau hafi ekki náð í gegn fyrir þinglok. Hann nefnir til að mynda lög um húsaleigu. „Leiga er að hækka um fimm, tíu, fimmtán þúsund á mánuði. Húsaleigulögin áttu að verja fólk en þau náðu ekki í gegn,“ segir Ragnar Þór.

Vinnumarkaður sé í uppnámi

Í færslu á Facebook segir Ragnar Þór vanefndir stjórnvalda á lífskjarasamningnum koma vinnumarkaði í fullkomna óvissu og uppnám. Hann segir það ekki gott veganesti fyrir ríkisstjórnina inn í komandi kosningar.

Málum haldið í gíslingu inni í ráðuneytum

Ragnar Þór segir að stjórnvöld geti ekki borið fyrir sig áhrif heimsfaraldurs Covid-19 eða mótstöðu á þingi sem ástæðu þess að málin hafi dagað uppi.

Þvert á móti segir hann reynslu sína af því að leiða húsaleigumálið benda til þess að fjármálaráðuneytið hafi gegngert tafið málið og skilað því of seint til þingsins. Því hafi ekki gefist tími til afgreiðslu þess í þinginu.

„Það var sátt í starfshópi um húsaleigumál en það virðist vera lífsins ómögulegt að koma hlutum í gegnum þingið þegar Sjálfstæðisflokkurinn er annars vegar," segir Ragnar Þór.

Hann segist þó ekki hafa sérstaklega horn í síðu Sjálfstæðisflokksins og að forsendubresturinn sé jafnt á ábyrgð allra ríkisstjórnarflokkanna.

Vilji til að halda samninga

Ragnar Þór segir að vilji sé innan Alþýðisambandsins að halda lífskjarasamninginn en að það gæti reynst erfitt enda verði engin stjórnvöld til að semja við. Ákveða þurfi hvort samningnum verði sagt upp fyrir klukkan fjögur þann 30. september.

„Það er alveg ljós að það muni taka lengri tíma að mynda ríkisstjórn,“ segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×